Sjómannablaðið Víkingur

Ukioqatigiit

Sjómannablaðið Víkingur - 01.08.1956, Qupperneq 19

Sjómannablaðið Víkingur - 01.08.1956, Qupperneq 19
BL ÓÐÞR ÝSTINGUR ★ EFTIR DAMON RUNYON Það er sennilega hálftólf á miðvikudag-skvöldi og ég stend á horninu á Pertugastaogáttundastræti og Sjö- undugötu, hugsandi um blóðþrýsting minn, sem er mál- efni, um hvert ég hafi ekki hugsað mikið til þessa. I sannleika sagt, ég heyri aldrei getið um blóðþrýst- ing minn fyrr en síðdegis þennan miðvikudag, þegar ég fer að hitta Breman doksa út af maganum í mér, og hann setur tilfæringar á handlegginn á mér og segir ^nér, að blóðþrýstingurinn í mér sé hærri en kryppa á ketti, og mér sé hollast að gæta þess vel, hvað ég éti og forðast æsingu, ellegar ég geti hrokkið upp af þegar sízt vari. „Taugaóstyrkur maður eins og þú með blóðþrýsting álíka háan og spaðaás, verður að lifa rólegu lífi“, segir Breman doksi. „Tíkall takk“, segir hann. Jæja, ég stend þarna og hugsa sem svo, að það verði ekki mjög erfitt að forðast æsingu eins og allt er í pott- inn búið í þessari borg nú í svipinn, og ég óska að hafa tíkallinn aftur til að veðja á Sólargeisla í fjórða hlaupinu í Pimlikó næsta dag, þegar ég lít allt í einu upp og hver stendur þá frammi fyrir mér nema Kalli Rosti. Hafi ég nokkra hugmynd um að Kalli Rosti sé að nálgast mig, getur þú farið og veðjað öllu kaffi á Jövu um það, að ég muni verða einhvers staðar annars staðar með sama, því Kalli Rosti er þess konar náungi, sem ég kæri mig ekki um að hafa neitt saman við að sælda. í sannleika sagt, ég óska engrar hlutdeildar í honum. Auk þess óskar ekki neinn í þessari borg að hafa neina hlutdeild í Kalla Rosta, því hann er harður nagli. Sann- leikurinn er sá, að það er enginn harðari nagli nein- staðar í heiminum. Hann er stór og breiður náungi, með tvær stórar hendur og heilmikið af slæmum til- hneigingum, og honum finnst ekkert um að slá menn niður og ganga á ásjónum þeirra, ef honum býður svo við að horfa. I sannleika sagt, þessi Kalli Rosti er það, sem kallað er górilla, af því hann er kunnur að því að bera oft á sér byssu í buxnavasanum og skjóta stundum fólk dautt eins og dyranagla með henni, ef honum líkar ekki hvernig það hefur hattinn á höfðinu — og Kalli Rosti er afar vandlátur um hatta. Allar líkur eru til þess, að Kalli Rosti skjóti margan manninn í þessari borg, og þá sem hann skýtur ekki, stingur hann með hníf, VÍKINGUR og eina ástæðan til þess, að hann er ekki í fangelsi, er sú, að hann er nýkominn þaðan, og yfirvöldin hafa ekki tíma til að hugsa upp eitthvað til að stinga honum inn fyrir á ný. En hvað um það, ég veit ekki fyrr, að Kalli Rosti sé í nágrenninu, en ég heyri hann segja: „Jæja, jæja, svo er nú það“. Síðan þrífur hann í kragann á mér, svo mér þýðir ekkert að hugsa til að taka til fótanna, enda þótt ég óski þess innilega. „Halló, Rosti“, segi ég afar glaðlega. „Hvernig geng- ur?“ „Allt meinhægt", segir Rosti. „Ég er feginn að sjá þig, því ég er að svipast eftir félagsskap. Ég er þrjá daga yfir í Fíladelfíu í viðskiptaerindum". „Ég vona fastlega, að þér hafi gengið vel í Fílu, Rosti", segi ég, en fréttin gerir mig afar taugaóstyrk- an, því ég er mikið fyrir að lesa blöðin og mér, er sæmi- lega ljóst, hvernig viðskiptum Rosta í Fílu er háttað. Það er ekki nema einn dagur síðan ég les smáklausu frá Fílu um það, hvernig Svarti Siggi, sem er mikill stórlax í áfengisverzluninni þar, er sallaður niður rétt við sínar eigin húsdyr. Auðvitað veit ég ekki, að Kalli sé sá aðili, sem sallar niður Svarta Sigga, en Kalli Rosti er í Fílu, þegar Siggi er sallaður, og ég get lagt saman tvo og tvo eins og hver annar. Það er alveg eins og ef bankarán er framið í Cleveland, Ohio, og Kalli Rosti er í Cleveland, Ohio, eða í nágrenninu. Svo ég er afar taugaóstyrkur, og tel víst, að blóðþrýstingurinn hækki með hverri sekúndu. „Hvað hefur þú mikið á þér?“ segir Kalli Rosti. „Ég er staurblankur". „Ég hef ekki nema túkall, Rosti“, segi ég. „Ég borga lækni tíkall £ dag fyrir að finna, að blóðþrýstingurinn í mér er afar slæmur. En auðvitað er þér velkomið það, sem ég á“. „Jæja, túkall er ekki neitt fyrir heldri menn eins og þig og mig“, segir Rosti. „Förum til Natans Detroit i teningakast og vinnum peninga". Nú auðvitað langar mig ekkert til að fara í teninga- kastið hjá Natan Detroit, og ef mig langar þangað, langar mig ekki að fara með Kalla Rosta, því maður er stundum dæmdur eftir þeim félagsskap, sem hann er í, einkum í námunda við teningakast, og það er hætt við, að Kalli Rosti sé talinn' slæmur félagsskapur. Og 151

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.