Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.08.1956, Blaðsíða 24

Sjómannablaðið Víkingur - 01.08.1956, Blaðsíða 24
Kveðjuorð Andrés Sveinbjörnsson hafnsögumaður Hann fæddist 1. febrúar 1895 að Bíldsfelli í Grafningi og lézt hinn 12. júlí 1955. Foreldrar hans voru: Ólöf Andrésdóttir, nú komin yfir átt- rætt og Sveinbjörn Sveinbjörnsson, síðar bóndi að Teigi í Fljótshlíð. Það er að bera í bakkafull- an lækinn, er ég minnist frænda og samstarfs- manns, svo vel hafa aðrir mér pennafærari menn gert það. En tvennt kemur til, í fyrsta lagi langar mig að blað okkar sjómannanna, Víkingurinn, geymi nafn hins mæta manns og svo í öðru lagi að blóð- ið renni til skyldunnar. Þótt við Andrés heitinn værum ekki náskyldir var svo margt sem við áttum sameiginlegt. Skóli lífsreynzlunnar hafði fært okkur sönnur á að lífið er enginn leikur, þegar móðir með ung börn stendur ein og ó- studd og óharðnaður drengur verður að gera eins og hann getur til þess að skapa björg í bú. Fyrstu kynni mín af ættingjum Andrésar var er ég á barnsaldri var sendur til ömmu hans Guðbjargar Árnadóttur á litlu Háeyri á Eyrár- bakka til þess að læra að prjóna. Gudda Árna, eins og við börnin kölluðum hina öldnu ágætis- konu, hafði verið um skeið í þjónustu langafa míns Þorleifs Kolbeinssonar frá Háeyri. Fyrir frábæra þjónustu hafði Þorleifur gefið Guð- björgu jörð í Árnessýslu og átti afnotagjald jarðarinnar að vera nokkurskonar lífeyrir handa henni. ' Næst . kynntist ég móðir Andrésar, Ólöfu Andrésdóttur, og fannst mér hún alltaf minna mig á móður sína Guðbjörgu, sama tryggðin, festan og góðvildin. Árið 1941 urðum við Andrés heitinn sam- starfsmenn. Þau kynni er við samstarf okkar myndaðist varð æ nánara og betra eftir því sem árin liðu. Alltaf var eitthvað traust og gott að vera í návist Andrésar. Á gleðistundum var hann hrókur alls fagnaðar og söngmaður góður. öll- um mannúðarmálum hafði hann tíma og vilja til þess að greiða atkvæði sitt. Hann var sannur jafnaðarmaður í hug og hjarta, vildi öllum rétta hjálparhönd sem bágt áttu. Andrés var hlé- drægur í eðli sínu og lifði ekki lífinu til þess að sækjast eftir metorðum. Fáa menn hefi ég þekkt, sem betur hafa hugsað um móður sína til hinztu stundar, en hann. Fyrir það ásamt svo mörgu góðu, sem við samstarfsmenn hans við Reykjavíkurhöfn og ótal aðrir, sem nutu að- stoðar hans og leiðsagnar í hartnær 3 áratugi veit ég að hann fær endurgoldið í ríki réttlætis, þar sem fyrst og fremst er litið á hjartalagið og þjónustu við aðra. Enn finnst mér, og svo mun fleirum finnast, að vinur og félagi okkar Andrés sé aðeins í burtu um stundai'sakir að veita þeim leiðsögn, sem ókunnir eru í umdæmi Faxaflóa, og þannig hugsa ég mér viðskilnaðinn þar til við mætumst á landamærum lífs og dauða og hann kemur öruggur, traustur og hjálpfús að lseiðbeina ókunnugum leiðina að fót- 156 VÍKINGUR

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.