Sjómannablaðið Víkingur - 01.08.1956, Blaðsíða 27
7/5. Danska sjómannasambandið
hefur ákveðið að greiða í afborgun-
um einnar milljón króna sekt, sem
það verður að greiða vegna ólöglegs
verkfalls. — Nýlega komu 16 þing-
menn úr Æðsta ráði Sovétríkjanna
til Stokkhólms. Munu þeir dvelja
þrjár vikur í Svíþjóð í boði sænska
þingsins.
•
Lögreglan í Ivaupmannahöfn telur
sig komna á slóð smyglaraflokks,
sem stundað hafi stórfellt gullsmygl
til Norðurlanda undanfarin ár. —
Nýlega varð mesti bruni, sem orðið
hefur við höfnina í Sidney í Ástralíu
síðan stríðinu lauk.
•
14/5. Æ gilegt flugslys varð í
Quebec í Kanada. Fórust þar eða
er saknað yfir 50 manns, er þrýsti-
lofsflugvél hrapaði til jarðar.
•
16/5. Mollet, forsætisráðherra
Frakklands og Pineau, utanríkisráð-
herra, fara í opinbera heimsókn til
Moskva. — Samkomulag hcfur náð/t
um fiskveiðisamning milli Sovét-
ríkjanna og Japans. — Stjórn Sovét-
ríkjanna hefur ákveðið að fækka í
herafla sínum um 1,2 millj. manna
fyrir 1. maí 1957.
•
18/5. Ríkisstjórnir Sovétríkjanna
og Frakklands hafa gert með sér
samning um verzlun og menningar-
skipti milli landanna.
•
23/5. Þess er nú minnst í Noregi
og víða um heim að fimmtíu ár eru
liðin frá dauða Henriks Ibsen. Minn-
ingavikan var opnuð með hátíðlegri
athöfn í ráðhúsi Olsóarborgar. —
Mendes France, varaforsætisráð-
herra Frakka, sagði af sér í gær.
Er hann óánægður með stefnu
Mollet-stjórnarinnar í Algiermálinu.
V í K I N G U R
— Ivnútur prins, bróðir Danakon-
ungs, opnaði í gær hina alþjóðlegu
fiskiðnaðarsýningu í Ivaupmanna-
höfn. Fjórtán þjóðir taka þátt í sýn-
ingunni, þ. á. m. íslendingar.
•
25/5. Nýlega er látinn í Tangier
í Norður-Afríku hinn heimsfrægi
sænski sakfræðingur Harry Söder-
man. Söderman var 54 ára, er hann
lézt. — Um 200 manns hafa Iátizt
af kóleru í Kalkútta. Pestin hefur
herjað um hálfan mánuð. í Darwin
í Ástralíu hefur fundizt stærsti
„moli“ af bikblendi (pitchblende),
sem sögur fara af, en hann vó eina
smálest. Búizt er við að úr honum
muni verða unnið úraníum.
•
30/g. Ráðagerðir eru nú um að
stofnsetja fríhöfn eða umskipunar-
höfn á vesturströnd Grænlands og í
sumar munu kanadisk eða bandarísk
skip rannsaka möguleika á þessu. —
Skýrt hefur verið frá því, að V. M.
Molotoff, utanríkisráðherra Rússa,
hafi beðizt Iausnar og Shepiloff, rit-
stjóri „Pravda“, hafi tekið við starfi
bans.
8/6. Fulltrúadeild Bandaríkjaþings
hefur ákveðið að lækka fjárveitingu
til efnahagsaðstoðar við erlend ríki
um 1000 millj. dollara. — Franskir
fornleifafræðingar hafa fundið menj-
ar flokks manna, sem uppi var fyrir
um 100 þúsund árum og talið er að
sé tengiliður milli Neanderthals-
mannsins og Cro-Magnonmannsins.
•
13/6. Ofsarigningar hafa valdið
miklum flóðum á ýmsum stöðum í
Noregi og hafa flóðin valdið miklu
tjóni. — Síðasta brezka herliðið
hverfur á brott frá Egyptalandi eftir
74 ára óslitna setu á egypzkri grund.
— Mikið járnbrautarslys varð ná-
lægt borginni Reims í Norðaustur-
Frakklandi, er hraðlestin milli París-
ar og Lúxemborg fór þar út af spor-
inu. — Nítján brezkir hermenn biðu
bana af völdum skógarelda á Kýpur,
en átján fengu alvarleg brunasár og
önnur meiðsli.
•
20/6. Farþegaflugvél frá Venezu-
ela fórst og munu allir, sem i henni
voru, 74 manns, hafa farizt.
•
22/6. Skemmtisnekkju, er var að
koma með fólk frá trúarhátíð, hvolfdi
all-langt frá landi undan norður-
strönd Jövu og fórust 73 manns, þar
á meðal margt kvenna og barna.
•
27/6. Laganefnd S.Þ., sem á að
semja tillögur um nýjar alþjóðlegar
siglingareglur, þ. á. m. landhelgis-
reglur, kom saman á fund í Genf
nýlega. — Frelsisráð Norður-Afríku,
sem aðsetur hefur í Kario, hefur
skorað á stjórnir Egyptalands, Italíu
og Júgóslavíu að hafa milligöngu um
málamiðlun í Alsír. — Til alvarlegra
óeirða kom í iðnaðarborginni Poznan
í Póllandi. Þúsundir verkamanna
fóru í fylkingu um borgina, söfnuð-
ust saman á torgunum. Þeir báru
skjöld, sem letrað var á: Vér heimt-
um meira brauð. Veltu þeir um spor-
vögnum og bifreiðum og rifu í sund-
ur rússneska fána. Kaupstefna hefur
verið i borginni frá því 17. þ. m. og
mikill fjöldi útlendra kaupsýslu-
manna, og hafa fregnir borizt með
þeim um óeirðirnar.
•
28/6. Blaðamenn frá 8 meðlima-
rikjum N.-Atlantshafsbandalagsins
komu til Reykjavíkur. Munu þeir
skoða landið og fiskiðnaðinn og ræða
við ráðherra. — Eisenhower farinn
af sjúkrahúsinu og heldur upp á 40
ára hjúskaparafmæli sitt næstu daga.
— Portúgalar eru sagðir óðfúsir að
fá bandarískar herstöðvar á Azor-
eyjum, eftir að Alþingi samþykkti að
segja upp herverndarsamningnum.
Munu skilyrði þeirra verða, að
Bandarikjamenn styðji kröfu þeirra
um full yfirráð yfir nýlendunni Góa
á Indlandsströnd. — ítalska lögregl-
an á í höggi við geysifjölmennan
glæpalýð, sem aðallega hefur eitur-
smygl á starfskrá sinni, en einnig
aðra glæpi.
159