Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1957, Blaðsíða 19

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1957, Blaðsíða 19
Furðulegar deilur um m.s. Hamrafell Þann 9. des. sl. kom hingað til Islands stærsta skip flotans m/s Hamrafell um 17.000 smál. að stærð. Við venjulegar aðstæður getur skipið flutt um 15.500 smál. af olíu. Skipið var byggt hjá Deutsche Werft í Hamborg 1952. En á síðastliðnu vori keypti Samb. ísl. samvinnufélaga og Olíu- félagið h/f skipið í sameiningu, en það fékkst ekki afhent fyrr en 21. sept. sl. Méð komu þessa skips til landsins í eigu inn- lendra aðila er tvímælalaust stigið eitt stærsta spor í siglingamálum þjóðarinnar. Allt frá því að Eimskipafélag Islands eignaðist sitt fyrsta skip, e/s Gullfoss, sem á þeim tíma styrkti Islendinga í trú þeirra á sjálfræði og efnahagslegt sjálfstæði, hefur vakað sá draumur í vitund fólksins, að Islendingar þyrftu að verða sjálfum sér nógir um farkost til þess að flytja nauðsynjar að iandi og afurðir á erlenda markaði. Þessu takmarki er að vísu ekki náð ennþá, við þurfum að hafa leiguskip í förum við inn- og út- flutning, þó við höfum eignast allmyndarlegan farskipakost, sem veitir þjóðinni stórkostlegt ör- yggi fyrir því að innilokast ekki og verða hung- urmorða þó eitthvað bjátaði á með siglingar ann- ara þjóða til landsins eins og átti sér stað fyrr á tímum. Forustumenn Sambands ísl. samvinnufélaga og Olíufélagsins h/f hafa með þessum skipakaupum leyst stórt hlutverk, sem öll þjóðin mætti virða að verðugu. Og íslenzk sjómannastétt hefur ekki látið sitt eftir liggja. Það hefur ávallt verið talið að til þess að starfrækja svo stór olíuskip þyrfti sérmenntaða sjómenn, og fleiri mánaða þjálfun. En íslenzka skipshöfnin, sesi tók við Hamrafell- inu náði því á örskömmum tíma að starfrækja skipið, og myndi sóma sér hvar sem væri í heim- inum á siglingaferðum slíkra skipa. Það munu vera um þrjú ár síðan fyrst var farið að vinna að því af alvöru hér á landi að kaupa olíuflutningaskip, en ekki komist í framkvæmd fyrr en þetta af ýmsum ástæðum, sem hér verður ekki reynt að sundurgreina. Hins vegar hefur það komið fram í sambandi við kaupin á Hamrafelli, að skipið muni hafa kostað um 46 millj. króna og ef kaupin hefðu tekizt einu eða tveimur árum fyrr, hefði slíkt skip kostað um 20 millj. krónum minna. En það samsvarar því, að ef strax hefði verið hægt að tryg'gja kaup á olíuskipi, þegar áformin hófust, hefði mátt fá tvö skip fyrir sama verð og eitt nú. Og þá hefðum við staðið nærri því nú að eiga skipakost til þess að flytja nærfellt alla olíu til landsins á eigin skipum, og það hefði sennilega sparað okkur aðrar 20 millj. krónur, sem við höf- um á þessum tíma greitt útlendingum í farm- gjöld fyrir olíu og sjáum aldrei eyrir af aftur, en hefði verið hægt að nota til stuðnings við kaup á þriðja olíuskipinu ef íslenzkir aðilar hefðu fengið að njóta sömu aðstöðu. Það má að vísu segja, að það er auðvelt að reikna slíkt út eftir á, með þeim viðhorfum sem nú hafa skipast í heiminum, en ekki voru fyrir- sjáanleg á þeim tíma sem liðinn er. Og mætti því ætia, að menn reyndu að bæta nú fyrir mis- tökin með því að leggjast á það með öllum kröft- um, að þjóðin gæti sem allra fyrst eignast fleiri slík skip sem Hamrafell, þó svo að eitthvað þyrfti á sig að leggja fyrir það. En svo undarlega bregður við, að þetta 'glæsi- lega afrek í siglingamálum íslendinga er að hverfa þjóðinni á fyrstu vikunum eftir komu skipsins til iandsins í moldviðri pólitískra gjörninga. Fann- gjöld skipsins, sem eru lægri en skipanna sem sigla á sömu leiðum með sams konar farm, en lægri tilkostnað heita „okur“ og dugur forustu- mannanna „glæpur“. íslenzka þjóðin hagnast um 10 millj. króna á farmgjöldum m/s Hamrafells fyrstu mánuðina, en verður að greiða útlendingunum sem sigla samhliða Hamrafellinu orðalaust tvöfalda þá upp- hæð á sama tíma. Islenzka ríkið fær milljóna tekjur af því að Hamrafell er íslenzk eign. íslenzkir eigendur olíu- skipsins hafa fært og færa þjóðinni tugmilljóna verðmæti inn í landið ef mölur úlfúðarinnar fær ekki grandað þessu dýrmæta djásni í höndum þeirra. Það yrði því Islendingum dýr prentsverta, ef það tækist með pólitískum bragðaleikjum og ábyrgðarleysi að myrkva fólki svo sýn, að þjóðin færi í alvöru að trúa að hún væri að tapa á því, að Hamrafell er íslenzk eign. H. J. 19

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.