Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1957, Blaðsíða 25
þaö hafði þessi för verið blásin upp í Þýzkalandi sem
ein af mestu hetjudáðum í sögu þýzka flughersins í
styrjöldinni.
Hawkins hallaði sér fram á borðið og sagði með
háðslegri rödd: Þér vitið eins vel og ég, hr. flugfor-
ingi, „barón“ von Werra, einnig nefndur hinn „rauði
djöfull" og skelfir RAF, að það hefur enginn loft-
orrusta átt sér stað, sem hefur nokkurn blæ af þess-
um hetjudáðum yðar, sem þér hafið sjálfur búið til.
RAFX' hefoi varla tapað níu Hurricane flugvélum á
einum degi, án þess að herstjórnin yrði þess vör,
sagði Hawkes. Og rakti síðan lið fyrir lið mótsagnir
þær sem fram komu í viðtölum við von Werra í
þýzkum blöðum um þessa hetjudáð. Og hélt svo áfram.
En hvað myndu nú meðfangar yðar segja um yður
ef þeir fengju að vita þann sannleika, sem við báðir
þekkjum um yðar upplognu hetjudáð, — þeir myndu
hlægja svo rækilega og gera grín að yður, að yður
yrði ekki viðvært.
Von Werra brosti með erfiðleikum. Hr. majór, ég
held ég viti hvaða gjalds þér krefjist fyrir að þegja,
hernaðarlegar upplýsingar. Rödd hans varð einbeitt-
ari. En þér fáið engar upplýsingar frá mér, hr. majór.
Þér getið gert mér ómögulegt að lifa innan um félaga
mína, — en hitt væri ennþá verra, því þá gæti ég
ekki þolað að lifa með sjálfum mér.
Yfirheyrslunni var lokið. Hún hafði verið hörð raun
fyrir hinn unga Þjóðverja, en hann hafði ekki látið
yfirbugast. Og þegar Hawkes hringdi á verðina til
þess að sækja hann, var von Werra búinn að ná fullri
stjórn á sjálfum sér á ný.
Hr. majór, sagði hann, ég skal veðja við yður einni
flösku af kampavíni á móti einum pakka af sígarett-
um upp á það, að áður en sex mánuðir eru liðnir skal
ég vera sloppinn úr fangabúðunum.
Það var útaf fyrir sig heppilegt fyrir Hawkes,
að anza ekki veðmálstilboðinu, því von Werra tókst
að standa við það.
* *
*
von Werra var um þetta leyti 26 ára gamall, fullur
af lífsþrótti, hiklaus og ofsalega trúaður á sjálfan
sig. Hann hafði verið í Luftwaffe um fimm ára bil.
Og strax gert sér grein fyrir því, að til þess að kom-
ast á topp innan Luftvaffe varð að koma af stað
hetjusögum um sjálfan sig. Það sem sérstaklega var
lofað var baráttuhugur og mátulega mikið af að gefa
dauðann og djöfulinn í alla skynsemi. Svo von Werra
gerði sitt bezta til þess að fljúga af sér alla félaga
sína í orustuæfingum og blés á allar settar reglur ef
honum gafst tækifæri til þess að gera alls konar
hundakúnstir 1 loftinu, fljúga rétt yfir húsþakið hjá
kærustunni sinni eða að fljúga undir brýr eða milli
símastaura. Og þegar félagar hans í flugsveitinni
höfðu hunda, fálka og jafnvel grísi sem mascotta,
dugði honum ekki minna en fá sér ljónsunga. Og
skreyta sig með barónstitli, sem enginn vissi deili á.
Og þegar styrjöldin brauzt út mátti ekkert til spara
til þess að verða „flughetja“ og von Werra tókst
fljótlega að skrá sig fyrir átta raunverulegum sigr-
* Styttingin RAF þýðir Royal Air Force — þ. e. brezki
konunglegi flugherinn.
um í lofti. En tímaglasið virtist renna hratt út. Pólsku,
norsku, hollenzku og belgisku flugflotarnir voru sigr-
aðir á nokkrum dögum og franski flugherinn varð-
ist í andarslitrunum og það var aðeins nokkurra vikna
spurning hvenær búið yrði að eyðileggja enska flug-
herinn. Það var því ofsafengið kapphlaup milli nas-
istaflugmannanna að safna sem flestum höfuðleðrum
áður en allt yrði um seinan. Með hinni skrautlegu
skýrslu sinni um níu flugvélar í einni orrustuferð
komst von Werra á hápunktinn. Að vísu vildu þýzku
hernaðaryfirvöldin ekki samþykkja nema fimm af
þeim, en samt hafði verið ákveðið að sæma hann
járnkrossinum. En af því gat ekki orðið í bili, því
að í tíundu ferð von Werra inn yfir England var vél
hans skotin niður.
von Werra var að vísu hávaðasamur gortari. En
óvinirnir skyldu aldrei fá hann til þess að uppljóstra
neinu. Og Luftvaffe var á þessu stigi í styrjöldinni
sigurviss í svo ríkum mæli, að ekki þótti taka
því að leggja mikla áherzlu á þagnarheit flugmann-
anna, þó að svo ólíklega tækist til að þeir yrðu tekn-
ir til fanga. En þetta kæruleysi þýzku herstjórnar-
innar varð gullnáma fyrir ensku leyniþjónustuna, því
flugmennimir voru oft með leyniskjöl á sér, kort,
dagbækur og tæknilegar upplýsingar. Og í vösum
þeirra fundust oft strætisvagna- og bíómiðar, svo auð-
velt var að sjá hvar herdeildir þeirra voru staðsettar.
En von Werra hafði verið það skynsamur, að brenna
alía pappíra og hugsanlegar upplýsingar áður en
hann skreið út úr flugvélarflaki sínu.
En eftir fyrstu yfirheyrsluna fannst honum þá að
það myndi vera hárrétt, sem herstjóm hans hélt
fram, að Englendingarnir væru hjákátlegir skussar.
í fyrstu var hann leiddur fyrir aldraðan gráhærð-
an foringja úr hernum, mjög vingjarnlegan mann,
sem hafði boðið honum að reykja, sem virtist ekki
gera sér neina grein fyrir, að von Werra var stríðs-
fangi, sem átti að yfirheyra. Að minnsta kosti talaði
hann ekki um annað en þýzk stjórnmál, nazistahreyf-
inguna, kröfur Þýzkalands um hinar gömlu nýlendur
og annað þess háttar. von Werra varð svo feginn að
hann var ekki krafinn um neinar hernaðarlegar upp-
lýsingar, að hann gleymdi sem snöggvast allri var-
færni og talaði frjálslega um allt milli himins og
jarðar. Það var ekki fyrr en samtalinu var lokið, að
hann gerði sér grein fyrir, hve snilldarlega Englend-
ingurinn hafði leitt viðræðurnar. Hann hafði einfald-
lega tekið andlegt mál af honum, til þess að komast
að því hvaða aðferðir væru hentugastar í áframhald-
andi yfirheyrslum til þess að fá hann til þess að tala
af sér og gefa upplýsingar.
Og þó að von Werra hefði nú tekizt að standa af
sér hinar harðskeyttu árásir Hawkins flugforingja
við aðra yfirheyrslu, var leyniþjónustan brezka á eng-
an hátt búin að sleppa af honum takinu, því næstu
daga var hann hvað eftir annað tekinn til yfirheyrslu
á hvaða tíma sólarhringsins sem var og ýmist yfir-
heyrður af einum eða fimm til sex mönnum í einu,
sem allir töluðu reiprennandi vel þýzku. Jafnvel boðið
upp á góðan miðdag, hægt væri að koma í kring
skemmtilegu kvöldi í West End, leikhús — auðvitað
í almennum fötum, og næturklúbb. Ein „yfirheyrsl-
an“ kom í ljós, að var vinsamleg samkoma hjá brezk-
um flugfélögum, þar sem whiský var á borðum( (eitt
25