Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1964, Blaðsíða 7
Suðurskautsskúmur breiðir út vængina og glennir upp ginið í árásarham. Litur
skúmsins er frá dökkbrúnum til ljósbr. Vængjahaf fuglsins er 4'/2 fet, hann vegur
um þrjú pund. Ljósmyndin var tekin við Wilkesstöðina á strönd suðurskauts-
landsins.
Fyrsti fuglinn var þannig litað-
ur rauður í Wilkesstöðinni, sem
er bandarísk. Var hann endur-
heimtur af Sovétmönnum.
Fyrstu kynni mín af Suður-
skautsskúmnum urðu 1939, 1940
og 1941. Þá var ég fuglafræð-
ingur í leiðangri Richards E.
Byrds, sem kannaði Palmer-
skagasvæðið á Suðurskautsland-
inu og seinna sem vísindaleið-
togi Wilkesstöðvarinnar 1956,
1957 og 1958. Ég tók þátt í hin-
um alþjóðlegu rannsóknum, sem
gerðar voru á skúmnum og gat
þá gert mér grein fyrir lifnað-
arháttum hans að nokkru leyti.
Á skrokkinn er Suðurskauts-
skúmurinn aðallega dökkbrúnn
og brúnleitur, en aðal flugfjaðr-
irnar með hvítu í. Unginn er
grár eins og grjótið í kringum
hann, er liturinn honum nokkur
vörn gegn ungaætum, sem ein-
göngu eru hans eigin tegundar
þ.e. skúmar, aðra ræningja þarf
hann ekki að óttast.
Suðurskautsskúmurinn rænir
eggjum og ungum annarra
skúma og er það engin furða,
þar sem landið er harðneskju-
legt og fæðusnautt. ■— Ulviðri
verða þó jafnvel enn fleiri ung-
um að bana. Ungadauði er því
mjög mikill, einkum þar sem
tveir ungar eru í sama hreiðri.
í 40 hreiðrum, sem voru undir
stöðugu eftirliti komust 42 ung-
ar úr eggjum, en af þeim lifðu
34 ungar lengur en 4 vikur. —
Hreiður skúmsins er aðeins smá
dæld, sem hann gerir í jörðina.
í þeim tilgangi að kanna mikil-
vægi litarins fyrir ungana, litaði
ég nokkra unga með sterkum á-
berandi rauðum og gulum lit.
Aðeins helmingur hinna lituðu
unga héldu lífi. Á sama tíma
sluppu flestir ungar, sem héldu
sínum eðlilega lit í þessu ná-
grenni við morðárásir skúma.
Þótt Suðurskautsskúmurinnverji
eigið hreiður sitt, af mikilli
hörku, þá sýnir hann eggjum og
ungum annarra skúma enga
vægð. Þegar vetur er á Suður-
skautslandinu hefst skúmurinn
við á ísnum úti fyrir ströndinni
VlKINGUR
og aflar sér fæðu úr sjónum. Er
þar einkum um smádýr og átu
(red krill) að ræða. Þetta er
einnig aðalfæða hvalanna á þess-
um slóðum. I október skömmu
eftir að Adélie-mörgæsirnar
hefja vorferð sína inn á Suður-
skautslandið, fylgja skúmarnir
á eftir. Þegar Weddel-selirnir
fara að kæpa,, láta skúmarnir
ekki á sér standa til að háma í
sig. hildirnar. Snemma í nóvem-
ber, þegar mörgæsirnar fara að
verpa, verða eggin 0g seinna
ungarnir helzta fæða skúmanna.
Þegar haustið kemur á Suður-
skautslandinu, fara mörgæsirnar
þaðan og fáum vikum seinna
kringum miðjan apríl fara skúm-
arnir einnig til veturvistar sinn-
ar úti fyrir ströndinni. Varp-
stöðvar skúmanna og einnig
Adélie-mörgæsanna eru innan 25
gráðu fjarlægðar frá Suður-
skautssvæðinu, á svæði, þar sem
meðalhitinn heitasta mánuð árs-
ins er aðeins 32 gráður á Fahr-
enheit. Skúmarnir verpa venju-
lega mjög nærri mörgæsunum,
meira en 95 prósent af hreiðr-
um skúmanna hafa fundizt við
jaðar varpstöðvar mörgæsanna.
Hver skúmhjón helga sér svæði,
sem er minnst 50 metrar í þver-
mál, inn á þetta svæði er öllum
óviðkomandi bannað að koma. —
Hjónin gera síðan nokkrar
grunnar dældir í jörðina, ein
dældin er að lokum valin fyrir
hreiður, sennilega ræður kven-
fuglinn valinu, að því búnu hefst
varpið venjulega í þriðju viku
nóvember, um 80 prósent skúm-
manna verpa venjulega tveimur
eggjum. Hjónin liggja á eggjun-
um til skiptis. Kvenfuglinn ligg-
ur þó á eggjunum um þrisvar
sinnum lengur enn karlfuglinn,
sem aðallega heldur uppi vörn-
um fyrir hreiðrið. Útungunar-
tími eggjanna er um það bil 30
dagar.
Eins og hjá öðrum fuglum eru
efnaskiptin í skúmnum hröð, en
blóðhitinn er hærri enn í nokkr-
um öðrum fugli á Suðurskauts-
svæðinu. Hann er að meðaltali
106,1 stig á Fahrenheit. Eggin
eru aðeins stærri en stór hænu-
egg. Óvenjuleg aðferð var notuð
til að mæla hitastig á eggjunum,
sem skúmurinn ungar út. Raf-
eindahitamæli var komið fyrir í
eggi, hann útvarpaði síðan stöð-
ugum tilkynningum um hitastig-
ið í egginu. Þetta áhald sendi
frá sér radíómerki, en tíðleiki
merkjanna fór eftir hitanum í
egginu. örlítil göt voru gerð í
enda eggsins, það tæmt og skor-
221