Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1964, Blaðsíða 65

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1964, Blaðsíða 65
Jf l' fáum kokkinn næst, þó slæmur sé.“ „Þið fáið kex og vatn,“ sagði kokkurinn kuldalega, um leið og þeir fóru, „ekkert annað, ég skal sjá til þess.“ „Þeir hljóta að vera afar hrifnir af mér,“ sagði skipstjóri hugsandi. „Hrifnir af að koma sínu fram,“ leiðrétti stýrimaður. „Þú hefur heldur betur hlaupið á þig.“ „Ég veit hvað ég er að gera,“ svaraði hinn öruggur. „Þú ætlar ekki að láta þessa bjálfa fasta í viku, og svíkjasvo loforðið?“ sagði stýrimaður undrandi. „Alls ekki,“ sagði skipstjóri gramur, „ég myndi heldur ganga í þrjá Heri en gera það, og það veiztu.“ „Þeir halda sér við föstuna, ég skil ekki, hvernig þú ætlar að koma í veg fyrir það.“ „Þar kemur heilinn til greina,“ svaraði skipstjóri, all- yfirlætislega." „Hef ekki heyrt um hann fyr- ir,“ tautaði stýrimaður, „en máske þú hafir líka notað öl- kollur." Skipstjóri leit á hann með fyrirlitningu, en þar eð hann hafði ekki svar á takteinum, lét hann þar við sitja, fór niður og blandaði sér stórt og sterkt glas og drakk, sjálfum sér og ráð- snilld sinni til heilla. Þrír dagar liðu, hásetarnir létu engan bilbug á sér finna, og þar eð þeim var Ijóst, að sigur myndi brátt vinnast, gerðu þeir engar fleiri atlögur að skip- stjóra. Stýrimaður fór ekki dult með þá hættu, sem hann taldi vofa yfir skipstjóra sínum, og reyndi með sem svörtustum myndum að gera honum skelf- inguna ljósa til fulls. „Hvað konan þín segir, þegar hún sér þig í fyrsta sinn arka um stræti með Herfánann, get ég ekki ímyndað mér,“ sagði hann. „Ég verð aldrei fánaberi,“ sagði skipstjóri glaðklakkalega. VÍKINGUR „Það verður líka þitt beiska hlutskipti að standa úti fyrir krá tengdaföður þíns og reyna að fá viðskiptavinina til að hætta við að fara inn,“ hélt Bob áfram. „Fallegt ástand það í friðsamlegri fjölskyldu!“ Skipstjóri brosti íbygginn, kveikti sér í vindli og gaut auga upp í ljórann. „Hafðu engar áhyggjur, drengur minn,“ sagði hann, „engar áhyggjur, ég hef tekið þetta að mér, og ég ætla að ráða því til lykta. Þegar menn misvirða sér betri menn og fara að prédika yfir þeim, þarf að taka þá til bæna. Ef þessi byr helzt, ætlum við að koma heim á sunnudagskvöld eða mánudagsmorgun.“ Hinn kinkaði kolli. „Jæja, hafðu þá augun opin,“ sagði skipstjóri, náði þvínæst í þrjár flöskur af rommi ásamt tappatogara út úr skáp sínum, og stillti öllu þessu á borðið, mjög leyndardómsfullur á svip. Svo brosti hann til stýrimanns, og stýrimaður brosti á móti. „Hvað er þetta?“ spurði skip- stjóri, dró út tappa og hélt stútnum undir nefið á stýri- manni. „Það lýkist rommi á lykt,“ sagði stýrimaður og svipaðist um eftir glasi. „Þetta er handa hásetunum," sagði skipstjóri, „en þú mátt fá sopa.“ Stýrimaður náði í glas og hellti vel í það, og þegar hann hafði sopið á, lýsti hann kurteis- lega yfir þeirri sannfæringu sinni, að hásetarnir myndu ekki vilja smakka á því undir nein- um kringumstæðum. „Þú skilur ekki, hversu stað- fastir þeir eru,“ sagði hann. „Þú heldur, að þetta sé bara einhver ný grilla hjá þeim, en svo er ekki.“ „Þeir skulu drekka það,“ sagði skipstjóri og tók upp tvær af flöskunum. „Láttu hina koma upp á þilfar.“ Stýrimaður hlýddi og fór upp, vel slompaður af fyrsta flokks J amaicarommi. „Hvað er þetta?“ spurði skip- stjóri Dick og rétti upp flösk- una. „Eitur, herra skipstjóri,“ svar- aði Dick hiklaust. „Viltu sopa,“ sagði skipstjóri kumpánlega. „Ekki fyrir tvö þúsund kall,“ sagði gamli maðurinn með skelf- ingarsvip. „Ekki fyrir tvær milljónir,“ sagði Sam. „Vill nokkur dropa?“ spurði rommeigandinn og veifaði flösk- unni. Um leið seildist fram óhrein krumla að baki honum, og áður en hann hefði til fulls áttað sig á fyrirbærinu, hafði kokkurinn þegið boðið og dró ekki af sér. „Ekki þú,“ urraði skipstjóri og hrifsaði flöskuna af honum, „ég átti ekki við þig. Jæja, pilt- ar, ef þið viljið það ekki af stút, skuluð þið fá það blandað.“ Áður en nokkur gat getið sér til um fyrirætlun hans, gekk hann að vatnstunnunni, lyfti lok- inu og hellti í hana romminu. Við algera þögn tæmdi hann þrjár rommflöskurnar í tunnuna og snéri sér síðan sigri hrósandi að dolfallinni skipshöfninni. „Hvað er í tunnunni, Dick?“ spurði hann rólega. „Eomm og vatn,“ stundi Dick, „en þetta er ekki heiðarlegt. Við höfum haldið okkar hluta af samkomulaginu, og þú hefðir átt að halda þinn hluta.“ „Og það hef ég gert,“ svaraði hinn um hæl, „og það geri ég enn. Sjáið nú til, piltar mínir, þegar þið ætlið að leika á mig, verðið þið ykkur sjálfum til at- hlægis og verðið að láta í minni pokann. — Einhver hefði beðið lengur með að ljúka leiknum, en mér finnst þið hafið þolað nóg. Nú getið þið fengið flesk og baunir, og ég held þið ættuð að taka ykkur ærlega máltíð, og næst, þegar þið ætlið að frelsa fólk, sem veit betur en þið,. þá hugsíð ykkur tvisvar um.“ „Við þurfum ekkert flesk, 279
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.