Sjómannablaðið Víkingur

Årgang

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1964, Side 63

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1964, Side 63
Það var stillt og bjart síð- sumarkvöld, þegar Anna Elísa- bet skreið hátíðlega niður Temsá fyrir eigin seglum, í stað þess að eyða aurum í drátt- arbát. Áhöfnin var önnum kaf- in á þilfari, en skipstjóri og meðeigandi — lítill naggur með háar hugmyndir um eigin vits- muni og mikilvægi — stóð við stýrið og rabbaði við stýrimann. Hann hafði eytt síðustu viku í góðu yfirlæti meðal ættingja uppi í sveit, og hlustaði nú náð- arsamlegast á skýrslu stýri- mannsins. „Svo er enn eitt,“ sagði stýri- maður. ,,Ég vona að þú hafir tekið eftir, hve ódrukkinn Dick gamli er í kvöld.“ „Ég hef haldið í við hann af ásettu ráði,“ sagði skipstjóri, á- nægður á svip. „Það er ekki það,“ sagði stýri- maður.. „Það mun gleðja þig að heyra, að hann og Sam hafa lát- ið hina tvo frelsa sig, svo og öll skipshöfnin, nema kokkurinn, sem enn er kaþólskur, er nú í Hjálpræðishernum.“ „Hjálpræðishernum!“ át skip- stjóri eftir í furðutón. „Hvað ertu að þvæla, Bob!“ „Það er dagsatt, þú mátt bera mig fyrir því. Hvernig það hef- ur mátt ske,. veit ég ekki, en ég veit bara að enginn þeirra hef- ur smakkað deigan dropa í fimm daga. — Þeir hafa allir fengið rauða kraga, og mér er sagt, að Dick gamli sé hörkumikill pré- dikari. Hann er eldheitur bar- áttumaður, og hinir fylgja hon- um eins og lömb.“ „Áfengið hefur lamað í hon- um heilann," segir skipstjóri spekingslega eftir alllanga um- hugsun. „Jæja, mér er sama, meðan þeir hegða sér skikkan- lega.“ VÍKINGUR Hann hélt sér saman, uns þeir voru komnir á sjó út með öll segl uppi, en þá fór forvitninað kitla hann, svo hann kallaði á Dick til að rabba við hann. „Hvað er þetta, sem ég heyri, að þú sért genginn í Herinn?" spurði hann. „Það er öldungis satt,“ sagði Dick. „Ég er svo sæll, þú getur ekki ímyndað þér það — við er- um það allir." „Dýrð sé guði!“ sagði annar háseti uppnuminni röddu. „Þetta er eins og mislingar," sagði skipstjóri kuldalega. — „Fjórir smitaðir í einu!“ „Það er eins og mislingar," sagði gamli maðurinn með á- herzlu, „og ég vona að þú smit- ist sjálfur, heiftarlega.“ „Hallelúja! kvað við frá hin- um hásetanum. — „Hann skal smitast.“ „Ekki þennan hávaða, Jói!“ kallaði skipstjóri hvasst.„Hvern- ig vogarðu að reka upp svona „Hann er æstur, skipstjóri,“ sagði Dick. „Það er elska í hjai-ta hans til þín, sem gerir.“ „Látum hann bera þá elsku í hljóði," sagði skipstjóri afund- inn. „Ó, það var einmitt það, sem við getum ekki,“ sagði Dick há- stemmdri rödd, sem skipstjóri á- leit réttilega, að vera myndi prédikunaftónn hans. „Við getum það ekki — og af hverju getum við það ekki? Af því við erum sælir, og við vilj- um, að þú verðir einnig sæll. — Við viljum láta þig finna sæl- una með okkur. Ó, kæri vinur.“ „Þetta er nóg,“ sagði æðstráð- andi Ann Elísabet hvasst. „Farðu ekki að kalla mig „kæra vin.“ Farðu framí! Farðu framí undireins!“ Gamli maðurinn hristi höfuð- ið dapurlega og hlý’ddi, og skip- stjóri snéri sér vandræðalegur að stýrimanni, sem stóð við stýrið og lét í ljós þá föstu á- kvörðun að stöðva með sama slíka hegðun um borð í skipi sínu. „Þú getur það ekki,“ sagði stýrimaður ákveðinn. „Get ekki?“ sagði skipstjóri gramur. „Ekki að tala um,“ sagði hinn. „Þeir eru allir haldnir af þessu, og því meir sem þú reynir að hrella þá, því verri verða þeir. Taktu eftir orðum mínum, bezt að láta þá eiga sig.“ „Ég ætla að bíða dálítið og athuga þá,“ sagði hinn, „en ég hef alltaf verið skipstjóri á mínu skipi, og skal alltaf verða.“ Næstu tuttugu og fjóra tím- ana drottnaði hann einn, óum- deilanlega, en á sunnudags- morgni eftir árbítinn, þegar hann var við stýrið, en hásetar niðri, kom stýrimaður, sem far- ið hafði fram í, glottandi út und- ir eyru. „Hvað er nú?“ spurði skip- stjóri og leit á hann með nokk- urri vanþóknun. „Þeir eru allir fram í með rauðu kragana á sér,“ sagði stýrimaður og glotti enn meir en áður, „og þeir eru að halda einskonar ráðstefnu um glataða sauðinn, og bezta ráðið til að hræra hans forherta hjarta.“ „Glataða sauðinn!“ át skip- stjóri eftir kæruleysislega, en forðaðist þó augnatillit hans. Vatn og brauð rokur um borð í skipi?“ EFTIR W W. JACOBS 277

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.