Sjómannablaðið Víkingur

Ukioqatigiit

Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.1967, Qupperneq 16

Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.1967, Qupperneq 16
að af manni við hana og spólun- inni stjórnað með handafli. Nú er hægt að fjarstýra henni og spól- unin er sjálfvirk.Þóerekkiheppi- legt að láta skipstjórann stjórna henni, því að hann hefur venju- lega nóg að gera í öðru. Heppi- legra er að hafa stj órnanda vind- unnar niðri á þilfarinu, þar sem hann jafnframt getur unnið við fiskinn og trollið. Innréttingin. íbúðir áhafnar í skuttogara eru TOnjulega framan til í skipinu, ýmist ofan eða undir aðalþilfari, þó ofan hlífðarþilfars. Þyngdar- punktur skuttogara er aftan við miðju vegna hins breiða hekks. Af þessum sökum verða hreyfing- ar skipsins frammi í krappari. Aftur á móti verður vinnustaður- inn rólegri hvað allar hreyfingar snertir. Ibúðaríburðarkröfurnar eru all miklar, eins og í öðrum nýtízku skipum, sérstaklega á þetta við um verksmiðjuskipin, sem langa útiveru hafa. Staðsetning vélarúmsins er dá- lítið mismunandi, en öruggt má teljast að heppilegast er að hafa válarúmið aftast í skipinu, því að þannig nýtist rúmmál skipsins bezt með tilliti til lestarrýmis. Ef vélarúmið er framan við lestar- rýmið, þarf að búa til göng aftur eftir skipinu, sem rýra lestar- rýmið, auk þess verður hávaði meiri í vistarverum áhafnar. Aftur á móti er betra að losa skipið, ef vélarrúmið er framan til, vegna þess að þá er hægt að hafa lúkuna á miðri lestinni, auk þess er heitara umhverfis véla- rúmið og því þægilegt hvað það snertir að hafa vélarúmið fremst. Losunarútbúnaður erlendra tog- ara hefur venjulega verið þannig að blakkirnar hanga í vírstagi milli mastranna. Venjulegast er þarna um fremur léttar hífingar að ræða og hefur 500 kg. lyfti- kraftur nægt. Á norskum skipum hafa bomm- ur verið fremur notaðar, en los- unarútbúnaðurinn fer þó nokkuð eftir útbúnaði hafnanna, sem Skip þetta er rússneskt og heitir „Natalia Kovshava,“ og er sagSur vera stœrsti skut- togari heimsins, 8425 hrúttótonn Skipiii hóf ferSir í júní sl. og getur framleitt 100 000 dósir af sérstaklega tilreiddum fiski á dag. Auk þess fryst 20 tonn af fiski, gert 4 tonn af fiskimjöli og hagrœtt 20 tonnum af úrgangi á sólarhring. (Mynd 3) sem skipin eiga að losa afla sinn í. í seinni tíð hefur athyglin mjög beinst að fyrirkomulagi öllu á vinnuþilfarinu, eftir að sérfræð- ingum er ljóst orðið að stærð áhafnar afmarkast af því hversu auðvelt er að vinna fiskinn. Eftir norskum reglum á að blóðga fisk- inn og láta blæða úr honum áður en hann er slægður. Síðan er hann þveginn, ef til vill haus- skorinn, pakkaður og staflaður í geymsluna. í öllu þessu er mikil verkleg vinna fyrir sjómennina. Unnið er því stöðugt að því að reyna að gera þetta auðveldara og óskadraumurinn er uppfinn- ing hentugrar vélar til að blóðga fiskinn, en virðist þó enn langt í land að hún verði fyrir hendi. Áhöfnin. Eins og að ofan er getið, er það aðallega starfið við að ganga frá fiskinum sem afmarkar fjölda áhafnar. Sjálft fiskiríið krefst á vakt eins skipstjórnarmanns, vindu- manns, tveggja háseta við hvom trollhlera og helzt eins manns sem trollbassa. Fræðilegur möguleiki er á því að láta skipstjórann stjórna vind- unni og láta karlana við troll- hlerana setja annan hlerann út fyrst og síðan hinn og láta skip- stjórann jafnframt vera bassa. En heppilegast er þó að hafa að minnsta kosti 6-7 menn starf- andi á þilfari við veiðarnar á hverri vakt. Að auki koma svo 2 vélstjórar, kokkur og hjálparkokkur eða á- höfn, samtals 18 menn. Þegar lokið er við að koma fiskinum niður og trollinu út á Fyrsta skipiö af fjórum vamtanlegum fyrir Associated Fisheries Ltd. er „Othello,“ 1574 tonn a8 stœrS. VélarúmiS er aftan viS fisklest meS 2350 liestafla vél á 400 sn/mín. SkipiS er 224 ft. langt og fer meS 13,5 mílna hraSa. (Mynd 4) 86 VlKINGUR

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.