Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.1980, Síða 19

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.1980, Síða 19
skvera sig af, borða og koma sér í koju, þannig að svefninn getur orðið 4—5 tímar á sólarhring. Gunnar: í miklu fiskiríi er þetta algengt. Vík.: Hvað eru túrarnir yfirleitt langir? Sigurður: Þeir hafa yfirleitt verið 6—7 dagar frá áramótum. Gunnar: Þetta er nú ekki al- gengt heilan túr. Þetta getur staðið svona í 2—3 daga, svo dettur kannski fiskirí niður, en kemur svo hrota aftur. Menn eru ótryggðir þótt þeir séu fastráðnir Vík.: Eru lausamenn, eða af- leysingamenn, ekki fastráðnir? Sigurður: Nei, en þeir eru alltaf til taks. En þeir hafa engan rétt gagnvart útgerðinni, nema nteðan þeir eru skráðir á skip. Vík.: Er eitthvað í kröfum ykkar um réttindi þessara manna? Gunnar: Nei, en þetta var mál sem við ætluðum að taka upp á samningafundum með útvegs- mönnum. Vík.: Hvað eru rnargir lausa- menn fyrir skip? Sigurður: Það eru venjulega 5 menn fyrir hvert skip. Það er ekki ákveðin tala manna fyrir undir- menn, því að þegar skipt er um menn, þá verða oft tilfærslur á stöðum manna um borð. Vík.: Hver má segja að sé nokkurn veginn reglan með frí manna. Hvað taka menn almennt langt frí árlega? Rúnar: Það er engin algild regla um þetta. Þetta hleypur á svona tveimur til fjórurn mánuðum á ári. Gunnar: Ef lausamenn yrðu fastráðnir, kæmi af sjálfu sér að fríin yrðu reglubundin. Vík.: Ykkur hefur ekki þótt ástæða til að fara fram á fjölgun í áhöfnum togara? Gunnar: Jú, á þennan hátt. Vík.: Fjölgun manna um borð? VÍKINGUR Gunnar: Nei, það hefur ekki kontið til greina. Pétur: Það má segja að það séu fastráðnir hjá útgerðinni bæði þeir sem eru á sjó á hverjum tíma og eins þeir sem eru í fríum í landi. Gagnvart tryggingum, veikinda- greiðslum og slysabótum, þá eru eingöngu tryggðir samkvæmt lög- um þeir sem eru lögskráðir á skipi hvert sinn. þ.e.a.s. þeirsem eru um borð. Þeir sem eru í fríi, þó að þeir séu raunverulega fastráðnir hjá útgerðinni. þeir eru ótryggðir þann tíma sem þeir eru í landi, og hafa sem sé engin réttindi sem fastráðnir starfsmenn. Það eru dæmi til þess að menn sem hafa verið urn áraraðir hjá útgerðinni, veikjast rétt áður en skipið kemur að landi, og þeir ætluðu í næsta túr, og þá hafa þeir enga mögu- leika á veikindagreiðslum. Grímur: Ef þú hins vegar leggst í koju og færð hitann í þér mældan upp í 40 stig 5 mínútum áður en skipið er bundið við bryggju, þá færðu veikindafrí. Ef þú labbar heim til þín og veikist þar, þá færðu ekkert. Pétur: Kröfur unt þetta voru settar fram í samningagerð 1977. Þar náðist ekki samkomulag um þetta, öðruvísi en að því var vísað til stjórnar ASV og stjórnar Út- vegsmannafélags Vestfjarða að kanna hjá tryggingarfélögum hvort hægt væri að kaupa einhvers konar tryggingu fyrir þessa menn, og það reyndist ekki vera. Síðan skeður það í málinu — og þess vegna er þetta ekki sett fram í kröfunum okkar núna — að það er fyrirheit um þetta í félagsmála- pakkanum fræga að sett yrðu lög sem tryggðu sjómönnum í fríi einhverjar ákveðnar greiðslur, miðað við svo og svo langa ráðn- ingu hjá útgerðinni. Þessi félags- málapakki hefur ekki séð dagsins ljós ennþá, þrátt fyrir það að sjó- rnenn á sínum tíma gáfu eftir af sínum launaliðum, 3% alveg eins og landverkafólk. Landverkafólk- ið fékk út úr þessum félagsmála- pakka að flestra dómi vel þessi 3%. Sérstaklega munaði það mestu um greiðslur í veikinda- og slysatilfellum. Lausn þessa máls er núna að lifa þriðju ríkisstjórn- ina. Eðlilegt að hver landshluti semji fyrir sig Vík.: Hvers vegna hafið þið kosið að láta þessa kjaradeilu af ykkar hálfu bera að með þeim hætti, að Sjómannafélag ísfirð- inga fer fyrst eitt sér af stað og síðan kemur ASV á eftir með kröfur fyrir hönd verkalýðsfélag- anna á Vestfjörðum? Hvers vegna hafið þið kosið að hafa ekki sam- flot í samningum með heildar- samtökum sjómanna, Sjómanna- sambandinu? Grímur: Svarið við þessu yrði tvíþætt. Aðdragandinn að því að þetta gerist svona hjá Sjómanna- félagi Isfirðinga er þannig, að það hefur alltaf verið eina aktíva sjó- mannafélagið á Vestfjörðum. Öll hin félögin eru blönduð félög, og hlutur sjómanna í þeim lítill. Eftir því sem ég best veit, hefur Sjó- mannafélag ísfirðinga alfarið alla tíð verið leiðandi í kjaramálum sjómanna á Vestfjörðum. Við gerðum tilraun til þess í desember að koma á kjaramála- ráðstefnu á vegunt ASV, en það tókst því miður ekki. Til þess voru utanaðkomandi ástæður, þing- kosningar og fleira sem truflaði það. Eins og fram hefur komið áður lögðum við mikla áherslu á það í fundurn okkar í desember að hraðað væri aðgerðum til að koma samningum af stað. Við áttum í rauninni engra annarra kosta völ. Við höfðum ekki samráð við Sjómannasambandið vegna þess að það hefur verið stefna sjó- manna hér á ísafirði og á Vest- fjörðum yfirleitt að sjá sjálfir urn 19

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.