Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.1980, Blaðsíða 27
Hjartsláttur jókst rétt áður en
stefnu var breytt
Einn þáttur í rannsóknum Svía
var að fá 10 menn til að fara eina
ferð með hvoru skipanna Svea
Regina og Svea Corona. Bæði
skipin voru farþegaskip (fluttu
fólk og bíla) og hið fyrrnefnda
8000 brúttó tonn, smíðað 1972, en
hið síðarnefnda 12576 brúttó
tonn, smíðað 1975. Ekki er getið
um ganghraða, en ætla má að
hann sé allt að 25 sjómílur á fullri
ferð. Þau voru í föstum ferðum
milli Helsinki og Stokkhólms og
Turku og Stokkhólms.
Þessir 10 menn voru allir
annaðhvort skipstjórar eða fyrstu
stýrimenn á sænska verslunarflot-
anum. Hver þeirra átti að stjórna
skipinu einsamall tvisvar á leið-
inni til Stokkhólms, 45 mín. í senn.
Annað skiptið úti á Eystrasaltinu
en hitt inni í skerjagarðinum fyrir
utan Stokkhólm. Enginn þeirra
hafði áður siglt á þessum skipum,
og þeir höfðu enga reynslu af að
sigla í skerjagarðinum fram yfir
það sem gengur og gerist. Fylgst
var nákvæmlega með mönnunum
meðan þeir voru við stjórn og
meðal annars mældur hjartsláttur
þeirra. í Ijós kom að hjartsláttur-
inn jókst áður en stefnubreyting
var gerð, en minnkaði svo aftur,
þegar skipið var komið á nýju
stefnuna.
í umræðum við tíumenningana
að loknum ferðunum kom fram
að átta þeirra töldu brúna á Svea
Corona betri en á Svea Regina. Þó
reyndist staðurinn í brúnni á Svea
25 cm hár pallur
F.INS MANNS
STJÓRNSTÖÐ
Vmsir mælar »j»
rnfar fyrir \él
Skiptiskrúfa
Ijarskiptatæki
Sij>linj>atæki
VINNUSTAÐUR
SKIPSTJÓRA
Radar
Stóll
KortahnrÓ
VINNUSTADUR FYRIR
SKÍLINGUNA
Radar
Stóll
Stýri »ji sjálfstvrinj>
St\' ris\ isir
Mióunarkompás
Brúin á Svea Regina. Gnginn stóll.
Brúin á Svea Corona. Nokkuð nýstárleg,
hvorki ineira né niinna en þrír stólar.
VÍKINGUR
27