Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.1980, Síða 21
Það þýðir ekkert annað en hækk-
un á kauptryggingu. Þetta er í
samningum hjá Sjómannasam-
bandinu, en ekki hér. Þetta vildi
ég nefna, af því að menn, ekki síst
útgerðarntenn, eru stundum að
tala um að við hér höfum haft
betri samninga en sjómenn annars
staðar á landinu. Það eru líka hér
kröfur um launaliðina alla, við
teljum að þeir hafi dregist aftur úr,
miðað við samninga landverka-
fólks. Tökum bara lítið dæmi: Það
er búið að lögfesta það að eftir-
vinna sé aflögð á föstudögum hjá
landverkafólki. Kauptryggingar-
greiðslurnar og akkorðsbeitningin
t.d. er miðuð við ákveðnar for-
sendur í launum landverkafólks,
þannig að þarna hefur orðið
röskun á.
Ein krafan er um það að út-
gerðin taki þátt í hlífðarfata-
kostnaði sjómanna. Víða er það
orðið þannig í landi að atvinnu-
rekendur leggja verkafólki sínu til
að einhverju leyti vinnuföt. Þessar
kröfur sem ég hef nú nefnt, og
fleiri svipaðar, hafa útgerðarmenn
ekki viljað ræða.
Vík.: Ég rek hér augun í einn
liðinn í ykkar kröfugerð: Samið
verði um skiptakjör á úthafs-
rækjuveiðum. Eftir hvaða samn-
ingum hefur verið farið á þessum
veiðum?
Grímur: Þeir neituðu alfarið að
ræða þennan lið, eins og aðra, þó
að þarna séu engir samningar til.
Ég held að hver útgerðarmaður
hafi santið við sína áhöfn. Þetta
hefur verið allt ákaflega laust í
reipunum.
Sigurður: Það eru kornin til hér
fleiri form útgerðar, sem ekki eru
til neinir samningar um, t.d.
hringnótaveiðar.
Þefta getur orðið nokkurra
mánaða verkfall
Grímur: Eitt vildi ég drepa á
áður en þessu samtali lýkur. Ég
tók eftir því að í blaðaviðtali sagði
menn segja upp kjarasamningi, þá
er það vegna þess að menn vilja fá
fram breytingar á honum, og Sjó-
mannafélagið hér er á undan öðr-
um félögum hér fyrir vestan að
leggja fram sínar kröfur. Síðan
koma aðrar kröfur í kjölfarið sem
eru gerðar að sameiginlegum
kröfum. Það hefur orðið lenska
hér, bæði í sjómannasamningum
og í landverkasamningum, að
samningagerðin taki kannski allt
upp í 8 eða 9 mánuði, og það er
hluti af óheillaþróun sem hefur
orðið á undanförnum árum, sem
menn vilja kannski með sínum
aðgerðunt nú undirstrika að þeir
sætti sig ekki við. Þegar settar hafa
verið fram kröfur og þeim er
svarað eins og nú hefur gerst, að
ekki sé hægt að ræða einn einasta
lið þeirra, þá er ekki nema um
tvennt að ræða — eins og margoft
hefur komið fram á fundurn hjá
sjómönnum hér — annað hvort að
gefa eftir kröfurnar og bíða eftir
að aðrir semji einhvern tíma, eftir
kannski árið, eða að standa fast á
sínum kröfum, a.m.k. þangað til
að viðsemjendurnir fást til þess að
ræða þær.
Um úthafsrækju og hringnót
eru engir samningar
Við höfum í þessu samtali gert
grein fyrir nokkrum helstu kröf-
unum. En það eru fleiri kröfur
sem fram eru settar. M.a. er ein
um að hlífðarfatapeningar greið-
ist matsveini og öðrum vélstjóra.
GRACO háþry stivatns- og froduhreinsitæki eru hönnut) til nota í fiskvinnslum, slátur-
húsum, kjötvinnslum, mjólkurbúum, gripahúsum, fiskibátum, vid hreinsun vinnuvéla.
húsa og víöar.
GRACO háþrýstivaUisdælur fást á léttum og meðfærilegum hjólavögnuni. Dælan er
knúin lofti og tengd beint viö vatnslögn. Engar raflagnir koma þar nálægt. Sápu og
hreinsiefnum er blandaö viö notkun með sjálfvirkum. stillanlegum búnaði. GRACO
hjólvagnar með dælum eru jafnan fyrirliggjandi í tveimur gerðum: C5
10:1 Hvdra-Mix System: afköst: allt að 11,5 l/mín. Vinnuþrvstingur: allt að 70 kg em2
20:1 King Ilydra-Clean: afköst: allt að 26,5 1/mín. Vinnuþrvstingur: allt að 126 kg cm*
F.igum einnig og útvegum aðrar stærðir og gerðir al hreinsidælum ásamt fjölda fylgi-
hluta, froðuhreinsitæki, hreinsiefnaskammtara til beinnar íblöndunarogblöndunar i ker
og tanka, lokaogallan helzta búnað, sem þarf til háþrvstivatns-og eða froðuhreinsikerfa.
FALKINN
SUÐURLANDSBRAUT 8, SÍMI 84670
I cilió lumiiri ii|>|iI\miiu;i
VlKINGUR
21