Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.1980, Blaðsíða 42
ásrafalar sem eingöngu eru ætl-
aðir fyrir bógskrúfur. Eins og sést
á myndinni (10) hefur millihrað-
genga vélasamstæðan betri nýtni
á öllu keyrslusviðinu. Ástæðurnar
eru betri skrúfunýtni og sú stað-
reynd að keyrt er samkvæmt lög-
málum skrúfunnar. Áður en
valdar eru vélar eða vélasam-
stæður þarf að sjálfsögðu að
reikna vandlega heildarnýtnina
og hagkvæmnina. Fyrrnefnt
dæmi er tekið vegna þess að
nýtnimynd olíueyðslunnar er
gagnstæð því er ætla mætti.
1 mörgum tilfellum er hægt að
sættast á hærri eldsneytiskostnað
millihraðgengra véla ef tekið er
með í dæmið að stofnkostnaður,
viðgerðir, mannahald, varahluta-
lager o.fl. er hagkvæmt.
Val á skipsvélum ætti ekki ein-
göngu að byggja á gæðamati ein-
stakra véla og vélagerða. Aðalat-
riði þessarar greinar er að draga
fram í dagsljósið marga misrnun-
andi þætti er taka verður í dæmið
við hönnun og rekstur vélarrúms,
þætti sem í allt of mörgum tilvik-
um eru ekki látnir ráða við
ákvarðanatöku.
Talning sjófugla meöfram
allri Noregsströnd
Norðmenn hafa farið af stað
með viðamikið rannsóknarverk-
efni sem m.a. felur í sér talningu
sjófugla meðfram endilangri
strönd Noregs. Samkvæmt frétt í
Fiskaren, 7—80, er hér um að
ræða umfangsmestu fuglataln-
ingu í Noregi til þessa. 1 fréttinni
er haft eftir framkvæmdastjóra
rannsóknarinnar, Nils Rov, að
henni sé hrundið af stað einkum
vegna vaxandi olíuvinnslu undan
ströndinni. Þó að hægt sé að
styðjast við fyrri rannsóknir á ein-
stökum svæðum, er þetta í fyrsta
sinn sem slík heildartalning og
rannsókn fer fram. Ætlunin er að
telja fugla bæði um varptíma og
að vetrarlagi og færa öll helstu
dvalarsvæði þeirra, þar með tald-
ar farstöðvar, inn á kort. Slík
kortlagning á að gera það mögu-
legt að átta sig á því þá og þá,
hvort olíumengun ógnar mikil-
vægum dvalarsvæðum fugla.
Umhverfismálaráðuneytið norska
veitir fé til þessarar rannsóknar,
en Veiðirannsóknastofnunin í
Þrándheimi annast framkvæmdir.
FTH
42
VÍKINGUR