Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.1980, Side 48
verður við komið í 3. mgr. 5. gr.
samn. stýrimanna og vélstjóra.
VII. Félagslegar umbætur með til-
styrk ríkisvalds
Hinn 30. nóvember 1978 voru
sett lög um efnahagsraðstafanir,
sem m.a. fólu í sér takmörkun
verðbóta á laun frá 1. desember
1978, sem nam 3% en þeirri lækk-
un verðbóta skyldi mætt með úr-
bótum í félagslegum réttindamál-
um launafólks, og var samráð haft
um málið við Alþýðusamband
íslands, en hins vegar ekki við
samtök sjómanna. Einnig voru að
þessu tilefni sett lög um afleys-
ingaþjónustu bænda, sem fela í
sér ráðningu sextíu sérþjálfaðra
manna og má ætla að kostnaður
ríkissjóðs vegna þeirrar jvjónustu
nemi ekki lægri fjárhæð en 500
milljónum á þessu ári.
Hvergi var vikið að hagsmuna-
málum sjómanna í þeim ráðstöf-
unum sem gerðar voru. Var því á
kjaramálaráðstefnu, sem haldin
var dagana 8. og 9. desember
1978, sameiginlega af Sjómanna-
sambandi Islands og Farmanna-
og fiskimannasambandi íslands
samþykkt ályktun um réttindamál
sjómanna, sem síðan var lögð
fram við stjórnvöld. Voru af þá-
verandi ríkisstjórn gefin mjög
ákveðin fyrirheit um flest þau at-
riði, sem tilgreind voru í ályktun
ráðstefnunnar. Hins vegar varð
reyndin sú að fæst af því náði
fram að ganga og nær ekkert sem
fól í sér kostnað fyrir ríkissjóð.
Nú hefur það hins vegar gerst
að Alþýðusamband íslands hefur
tekið upp í kröfur sínar nokkur
þeirra atriða, sem samtökum sjó-
manna var heitið. En þrátt fyrir
það er enganveginn tryggt að
þeim málum sé borgið.
Vill F.F.S.I. því undirstrika
eftirfarandi atriði:
1. F.F.S.Í. verði tryggður sjálf-
sagður réttur til aðildar að þeirri
endurskoðun laga um Atvinnu-
leysistryggingarsjóð með tilliti til
sérstöðu sjómanna gagnvart
sjóðnum.
2. Sérstaða sjómanna og fjöl-
skyldna þeirra verði sérstaklega
metin með tilliti til fæðingarorlofs
og þegar um veikindi barna er að
ræða.
3. Ríkisvaldið tryggi, að svo
miklu leyti sem lífeyrissjóðum,
sem sjómenn eru tryggðir í, öllum
sjómönnum fullan lífeyrisrétt,
sem starfað hafa sem sjómenn í 25
ár eða lengur.
4. Stofnað verði Velferðarráð
með þeirri tilhögun, sem sam-
bandið hefur lagt til fyrir sjó-
menn.
5. Sérstaka áherslu þarf að
leggja á að gera sjómönnum kleift
að njóta útvarps og sjónvarps
frekar en nú er.
6. Unnið verði að bættri að-
stöðu sjómanna í höfnum lands-
ins.
7. Tryggður verði verkfallsrétt-
ur starfsmanna Fandhelgisgæzl-
unnar.
8. Afnumin verði skaltlagning
björgunarlauna.
9. Öðrum hagsmunamálum
sjómanna, og þá einkum þeim
sem varða öryggi sjófarenda, sem
þáverandi ríkisstjórn hét að
hrinda í framkvæmd og enn hafa
ekki náð fram að ganga, verði á
þessu ári hrundið í framkvæmd án
frekari tafa.
Kröfur til stjórnar
Landhelgisgæslunnar
Almennt
1. 10% launahækkun á öll laun.
2. 4. stig Stýrimannaskóla verði
metið til launa.
3. Nfm í þjálfunarskólum og
námskeiðum verði metið til launa.
Starfsmönnum Landhelgisgæsl-
unnar skal gefinn jafn kostur á
þjálfun og námi.
4. Starfsmönnum Landhelgis-
gæslunnar verði séð fyrir nauð-
synlegri kennslu og þjálfun sam-
kvæmt markmiðum laga nr. 25
1967.
5. Slysa- og örorkutryggingar
verði teknar til athugunar.
6. Öryggismál öll verði tekin til
sérstakrar athugunar.
7. Sérstaða starfsmanna Land-
helgisgæslunnar, vegna löggæslu
og ábyrgðar, senr löggæslumenn,
verði rædd sérstaklega.
48
VÍKINGUR