Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1980, Blaðsíða 38
Ekjuskipið Eyrarfoss
Árið 1971 hófust siglingar með
ekjuskipum milli Evrópu og
Norður-Ameríku. Síðan hefur
þessari gerð flutningaskipa fjölg-
að svo mjög að segja má að bylting
hafi orðið í flutningatækni á sjó.
Við íslendingar höfum farið okk-
ur hægt við að tileinka okkur
þessa nýju tækni, en höfum nú
fjögur slík skip í förum milli
landa. Síðasta ekjuskipið sem
bættist flotanum er M/S Eyrar-
foss.
Þetta skip er annað af tveim
ekjuskipum er Eimskipafélag ís-
lands leigir svo kallaðri þurrleigu
þ.e. án áhafnar. Þar sem skipið
siglir undir dönsku flaggi á meðan
á leigunni stendur verður skip-
stjórinn að vera danskur. Þegar
Eyrarfoss kom til Reykjavíkur í
sinni fyrstu ferð fór Víkingurinn
um borð til að skoða skipið og þá
sérstaklega með hina nýju flutn-
ingatækni í huga. Er ég kom um
borð lagði ég fyrst leið mína upp í
brú. Brúin ásamt vængjunum nær
rúmlega þvert yfir skipið, væng-
irnir ná nokkuð út fyrir það. Þetta
er gert til að hægara sé að leggja
skipinu að bryggju.
Á skipum eins og Eyrarfossi
sem hafa yfirbygginguna fram á
og eru all löng (Eyrarfoss er 105 m
langur), getur verið erfitt að sjá
hvernig afturendana reiðir af upp
að bryggjukantinum. Með þessu
útskoti er reynt að bæta úr þessu.
Út á brúarvængjunum eru
stjómtæki fyrir bógskrúfu og
einnig er þar stýri. Stjómtæki
aðalvélar eru inn í brúnni aðeins
stjórnborðsmegin við miðju. Þar
sem býsna langt er frá brúar-
vængjunum að stjómtækjum vél-
arinnar (skipið er 18,8 m breitt)
verður að hafa mann við þau
þegar lagt er að eða farið frá
bryggju. Á Eyrarfossi er það 1.
stýrimaður sem hefur þetta verk
með höndum. Sú venja er þar líka
að 3. stýrimaður sé fram á, þá rétt
fyrir framan brúargluggana, og 2.
stýrimaður aftur á. Sá síðamefndi
hefur jafnframt með höndum að
opna lestina. Það sem er eins
manns verk og í því fólgið að
leggja út skutbrúna. Skutbrúin
lokar svo lestinni, þegar hún er
tekin upp.
í skipinu er gýrókompás af
gerðinni Anschútz, hann er
tengdur sjálfstýringu frá sama
VÍKINGUR
Hér sést vel hvernig brúarvængnum er skotið út. Með þessu móti sést vel aftur með
skipinu.
38