Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1980, Síða 64
geymi, olíusíu (10 miscron) og
olíukæli, oftast áfastur aðalvél.
Þrýstilega skrúfuöxuls flyzt úr
hinum hefðbundna stað í gírkassa
og er sett á skrúfuöxul aftan við
niðurfærslugír.
VM olíudrifið er hentugt fyrir
þá sem línu- og netaveiðar stunda
og hin frjálsa staðsetning vélar
getur haft ómetanlega þýðingu
hvað varðar nýtingu á vinnuað-
stöðu og lestarrými.
Umboð fyrir VM vélar og olíu-
drif hefur Barco, báta- og véla-
verzlun, Garðabæ.
★
Hjón voru að hnakkrífast úti á
götu.
Lögregluþjónn gengur til þeirra
og segir:
Skammist þið ykkar ekki
fyrirað vera að rífast hér úti á götu
í stað þess að gera það heima hjá
ykkur eins og siðprúðu fólki sæm-
Maður nokkur var á ferð í
Georgíu og varð vatnslaus fyrir
bílinn. Hann fékk vatnsfötu á
bóndabæ, og bóndinn bauð hon-
um auk þess eitthvað að borða.
- Hérna skal ég gefa þér dá-
lítið af osti úr efstu kommóðu-
skúffunni, sagði bóndi.
Þú geymir ostinn í efstu
skúffunni, sagði gesturinn. —
Sækja mýsnarekki í hann?
— Ekki að tala um, sagði
bóndi, — ég náði öllum músunum
og setti þær í neðstu skúffuna.
— Ég þekki mýs, sagði gestur-
inn, og ég þori að veðja, að eftir
stuttan tíma komast þær að ostin-
um í efstu skúffunni.
— Ég sá við því, sagði bóndi
íbygginn. — Þess vegna setti ég
köttinn í miðskúffuna.
★
Kona nokkur í Hafnarfirði varð
afar hrifin af Lindberg flugkappa,
þegar hann var hér á ferð fyrir
nokkrum áratugum. Konan gekk
með barni, hún var sannfærð um
að það yrði drengur, öldungis
staðráðin í að láta hann heita í
höfuðið á kappanum.
En nú fór þó svo að konan
fæddi meybarn. En hún varð ekki
í neinum vandræðum. Hún skírði
stúlkuna Berglind.
★
Hreppsnefndaroddviti nokkur
sendi svohljóðandi orðsendingu
um sveit sína: — Hér með eru allir
graðfolaeigendur áminntir um að
mæta stundvíslega á áður auglýst-
um stað og tíma, annars verða þeir
sektaðir eða geltir annarstaðar.
64
VÍKINGUR