Sjómannablaðið Víkingur - 01.10.1981, Blaðsíða 8
Þau eru áhugasöm krakkarnir þegar þau loksins komasl í snerlingu við sjóinn og allt sem
honum fylgir.
Jón Gissurarson, skólastjóri
Lindargötuskólans var einnig
mikill áhugamaður um þetta nám
og frá 1958—1973 var starfrækt
við skólann sérstök sjóvinnudeild,
í þriðja og fjórða bekk sem þá
hétu. Þeir höfðu þarna held ég, tíu
tíma á viku í sjóvinnu og siglinga-
fræðum, á móti tveim til sex tím-
um í dag og aðeins eins vetrar-
námi.
8
Kennslan virðist
bera árangur.
Það er gaman að geta þess að
Ólafur Óskarsson, skólastjóri
Valhúsaskóla, gerði könnun á
störfum nemenda sem voru í
þessari sjóvinnudeild árin
1959—1971. Könnunin náði til
144 nemenda. í ljós kom að yfir
70% voru í störfum tengdum sjáv-
arútvegi og um 50% voru í, eða
höfðu lokið námi í sérskólum
tengdum sjávarútvegi þ.e. stýri-
mannaskóla, vélskóla, fisk-
vinnsluskóla, loftskeytaskóla og
matsveinaskóla.
Ég gerði líka könnun meðal
nemenda sjóvinnudeildar Vörðu-
skóla 1975, en sá skóli var gerður
að verkmenntunarskóla, að hluta,
eftir að Lindargötuskólinn var
lagður niður. Af 12 nemendum,
voru fimm búnir eða voru að ljúka
námi í Stýrimannaskólanum, tveir
voru í vélstjóranámi og tveir
stunduðu sjómennsku. Aðrir tveir
voru í iðnnámi og til eins náðist
ekki. Þetta finnast mér ánægju-
legar niðurstöður og merki þess að
kennslan beri árangur. Annars er
mín skoðun að allir íslendingar
hafi gott af að kynnast sjávarút-
vegi og segi stundum þegar mér
hitnar í hamsi að það ætti að
skylda alla sem fara í háskóla að
vera eitt ár á sjó.
Hnífnum beitt á
verkmenntunina.
Ef við höldum áfram með sög-
una þá kom fram mikill áhugi á
Fiskiþingum 1971 og72aðkomaá
sjóvinnunámskeiðum, út um land.
Már Elísson fiskimálastjóri, barð-
ist síðan fyrir því að fá þessum
ályktunum framgengt, en til þess
þurfti menn og peninga. .Lúðvík
Jósepsson var þá sjávarútvegsráð-
herra og þeir Már þekktust vel.
Einhvern veginn atvikaðist það
svo að þeir Hörður og Lúðvík
komast í samband hvor við annan
og Hörður er ráðinn til sjávarút-
vegsráðuneytisins með starfsað-
stöðu hjá Éiskifélaginu og Fiski-
félaginu var falin framkvæmdin.
Hörður fær svo annan mann með
sér og þeir byrja að skipuleggja
þetta með ferðum út á land og
koma á fót níu námsskeiðum,
fyrsta árið, 1973. Það komu nú
upp einhver vandamál um hver
ætti að borga þetta og hver hitt
eins og alltaf er en Hörður smitar
VÍKINGUR