Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.10.1981, Page 10

Sjómannablaðið Víkingur - 01.10.1981, Page 10
Og þarna beit á. Ýsa var það, heillin. meir. Það var fyrst 1977 sem þær byrjuðu en nú hafa nokkrir tugir stúlkna lokið þessu námi. Þær hafa staðið sig alveg ljómandi vel. Skólaskip. — Kæmi sér ekki vel við þessa kennslu að hafa skólaskip. Við segjum einmitt frá því í Víkingn- um að Grænlendingar hafa nú eignast slíkt skip. - Jú, það er nú líkast til. Þetta er það sem vantar algjörlega. Ein- mitt sá þáttur sem ætti að vera svo sjálfsagður. Ég vissi ekki um Grænlendinga en ég veit að Fær- eyingar eiga tvö skólaskip sem þeir nota allt árið. Við erum algjör nátttröll meðal fiskveiðiþjóða í þessum efnum. Svo er maður að lesa greinar eftir vísa menn þar sem sagt er að við ættum að kenna þessum þjóðum. Viðgetum miklu frekar lært af þeim. Alltaf spurt: „Fæ ég að fara á sjóinn? Ég kem í marga skóla og fyrsta spurningin hjá nemendum er, fæ 10 ég að fara á sjóinn? Það er náttúr- lega það sem þá langar þó ekki væri nema einn túr. Ég hef rætt þetta við marga og það verður að leysa þetta mál. Það vantar alltaf peninga en það er til fullt af skip- um. Vestmannaeyingar hafa t.d. mikinn áhuga á þessu og hafa reynt að fá fjárveitingu til að reka bát. Það tóku sig saman nokkrir hagsmunaaðilar í sjávarútvegi, útgerðarmenn og fiskvinnslu- stöðvar fyrir áeggjan fulltrúa þeirra á Fiskiþingi, Sigurgeirs Jónssonar, en báturinn sem þeir höfðu augastað á, fékkst ekki — varkominn í úreldingarsjóð. Þetta er í fullum gangi þar og ég var að heyra það fyrir stuttu að þeir hefðu góðar vonir um að koma þessu inn í fjárlög 1982. Á Húsa- vík er mjög duglegur sjóvinnu- kennari, Vilhjálmur Pálsson. Harln hefur fengið til umráða lít- inn bát og farið með nemendur í hringróðra. Tveir til þrír hafa beitt einn daginn og farið svo sjálfir á sjó daginn eftir. Þeir hafa oft rót- fiskað. í Neskaupstað hafa nem- endur fengið að fara í vikuferðir með togurunum. Þetta hefur sem sagt tekist með frumkvæði heimamanna. Öllum í hag að unglingarnir komi betur undirbúnir. Ég sé það að þessi mál verða ekki leyst á næstunni nema með bráðabirgða lausnum. Annað hvort með því að koma nemend- um í einstaka róðra með sam- komulagi við útgerðarmenn eða að hvert bæjarfélag sjái um leigu á bát fyrir sína skóla. Hér í Reykja- vík er ég að hugsa um að nota fyrri leiðina. Ég var einmitt að tala við útgerðarmann sem er tilbúinn að hjálpa mér að skipuleggja þetta. Við ætlum að reyna að koma þessu á í vor. Ef báturinn færi eingöngu í þetta, kæmum við sex til átta krökkum að í einu. Þetta þarf skipulagningu og vilja. Krakkar í dag hafa ekki sömu að- stöðu og var hér áður. Þau hafa mörg hver aldrei komið á sjó en áður ólust unglingar oft upp við það að fara með pabba á sjó á trillum eða litlum vélbátum. Ég get tekið mig sem dæmi. Þegar ég byrjaði á togara, 15 ára gamall, liðu heil tvö ár sem ég var hreinn óvaningur. Mig dauðlangaði allt- af að læra að bæta, fannst það heilt galdraverk en það mátti enginn vera að því að kenna mér það. Fyrstu tvö árin var ég bara í nálakörfunni því óvirðulega starfi. Til viðmiðunar get ég tekið nemanda sem var hjá mér 1975 og ég útvegaði togarapláss. Eftir þrjá túra var hann orðinn netamaður þar. Það hlýtur að vera betra fyrir skipstjórnarmenn og sjómenn sjálfa, að fá unglingana betur undirbúna þegar þeir byrja. Velgengni sjávarútvegs ekki fyrir augunum á fólki. Eins og ég sagði áðan finnst mér ætti að koma þessu inn í menntun VÍKINGUR

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.