Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.10.1981, Blaðsíða 12

Sjómannablaðið Víkingur - 01.10.1981, Blaðsíða 12
Aldan segir ekki upp samningum Skipstjóra- og stýrimannafélag- ið Aldan og Skipstjórafélag Norðlendinga ákváðu að segja ekki upp samningum frá og með 1. nóvember eins og önnur félög Farmanna- og fiskimannasam- bandsins samþykktu. Við báðum Þórð Sveinbjörns- son framkvæmdastjóra Öldunnar að skýra frá hvers vegna þessi ákvörðun var tekin. Þessi ákvörðun var tekin eftir að gerð hafði verið nokkuð rækileg könnun meðal félags- manna um það í fyrsta lagi hvort þeir vildu segja samningunum upp og í öðru lagi, ef svo væri, hvað þeir hefðu fram að færa um kröfur í væntanlegum samning- um. Eftir þessa könnun kom í ljós að nánast engin viðbrögð voru meðal félagsmanna varðandi kröfur eða óskir um nýja samn- inga né heldur vilji til að segja samningum upp bara til að segja þeim upp. Þeim mönnum sem þessa ákvörðun tóku þ.e. stjórn- armönnum og trúnaðarráði fé- lagsins, fannst því ekki vilji fyrir hendi hjá félagsmönnum að segja samningunum upp. Það er fleira sem kemur inn í þessa mynd. í samningum okkar er ákvæði um það að ef kaup- hækkun á sér stað hjá fisk- vinnslufólki komi hún inn í kaup- liði okkar samnings. Það tryggir náttúrlega það að ef kaupið hækkar hjá verkafólki fáum við hækkun líka. Þetta var þó nokkuð stórt atriði þegar ákvörðunin var 12 tekin. Eins er það atriði líka að við gengum frá samningum í febrúar sl. þar sem verið var að glíma við ýmsa nýja hluti sem eru sérstakir fyrir þessa stétt. Aðalmálið sem þar náðist fram voru stórhækkað- ar iðgjaldagreiðslur í Lífeyrissjóð Sjómanna. Vegna þess hve stuttur tími er liðinn síðan þetta gerðist finnst okkur ekki miklar líkur til að fram náist miklar breytingar núna. Eru félagsmenn þá almennt ánægðir ineð kaupið sitt? — Nei, menn hafa margt að athuga varðandi kjör sín en það snýr kannski ekki helst að við- semjendum heldur eru það ýmis félagsleg atriði sem snúa. að stjórnvöldum. Annars framlengj- ast samningarnir ekki nema um sex mánuði. Okkur finnst það því raunsætt að láta þá mánuði líða með bundna samninga. Þessi ákvörðun nú var tekin með mun meira samráði við félagsmenn en oft gerist. Við héldum fundi t.d. á Snæfellsnesi og höfum trúnaðar- menn á hinum ýmsu stöðum sem eru í beinu sambandi við félags- menn og geta haft góð samráð við þá. Við teljum okkur því hafa farið fullkomlega eftir viðbrögðum fé- lagsmanna. Þungamiðjan er sú að okkur finnst ekkert heillavæn- legra að segja upp samningum og fylgja því svo ekkert eftir. Það hefur komið fyrir að við höfum verið með lausa samninga svo ár- um skiptir. Það er kannske þægi- legra að segja bara upp ef allir aðrir gera það eins og sum félög hafa gert, skilyrt. Þetta er ekkert annað en að kasta boltanum frá sér til annarra. Það finnast okkur ekki góð vinnubrögð. Það verður hugur að fylgja máli. Við ákváð- um eftir síðustu samninga að móta vel og rækilega kröfur fyrir næstu samninga og leggja þær kröfur fram um leið og sagt yrði upp. Með því að segja upp núna værum við ekki að framfylgja þeirri ákvörðun. Ef mönnum finnst þessi ákvörðun bera vott um uppgjöf af okkar hálfu vil ég benda þeim á að næg verkefni eru framundan við að ná fram í raun ýmsum mikil- vægum ákvæðum í gildandi samningum sem eru sí og æ brotin af viðsemjendum okkar. E.Þ. (Móðganir:) Beztu ár ævi hennar voru tíu árin milli tuttugu og níu og þrítugs ★ Maðurinn hennar er diplomat. Hann man eftir afmælisdegi hennar, en ekki hvað hún er gömul . . . •k Uppáhaldsdrykkurinn hans er sá næsti... ★ Hann ber enga virðingu fyrir elli — nema hún sé á flöskum .. . VÍKINGUR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.