Sjómannablaðið Víkingur - 01.10.1981, Page 13
Ur efra í neðra
Egilsstaðir — Borgarfjörður eystri
I
Guðlaugur Arason rithöfundur
fór nýlega um Austfirði, hitti þar
fólk og skrifar bæði um það og
önnur yfirnáttúruleg fyrirbrigði í
þeim greinum, sem hér fara á eft-
ir. í jólablaði birtast fleiri greinar
frá sama ferðalagi.
í Borgarfirði eystra er málvenja
að tala um að „fara í efra“ ætli
maður upp á Hérað. Á sama hátt
tala Borgfirðingar um að „búa í
neðra“, eigi þeir við það fólk sem á
heima í Borgarfirði.
Ég er staddur á flugvellinum á
Egilstöðum, sem er eina þorpið
austanlands þar sem ekki sést til
sjávar, og hef ákveðið að bregða
mér í neðra. Tilgangur þessarar
austurkomu minnar er að safna
efni fyrir menningar- og sjó-
mannablaðið VÍKING, eða snapa
fréttir eins og sumir vilja kalla
það. Dagurinn er 28. september.
Eftir að hafa orðið mér úti um
bílaleigubíl á Egilstöðum, skýst ég
upp í menntaskólann til að hitta að
máli kunningja mína. Ég rekst þar
strax á Jón Inga Sigurbjömsson,
sem er orðlagður myndasmiður og
þekktur fyrir að handleika tæki
sem bera nöfn eins og Kanon,
Pentax, Kodak og ég veit ekki
hvað og hvað. Ég spyr Jón hvort
hann sé ekki til í að gerast sérlegur
Ijósmyndari minn og lóðs því ég
hafi í hyggju að skjótast til Borg-
arfjarðar og skoða þar mannlífið.
Erindið var auðsótt og við Jón
höldum af stað.
Hvammur, sumarhús meistara Kjarvals.
VÍKINGUR
13
Að austan