Sjómannablaðið Víkingur - 01.10.1981, Síða 25
Seyðisfjörður
í Landnámu segir svo: „Bjólfur
fóstbróðir Loðmundar nam
Seyðisfjörð allan ok bjó þar alla
ævi. Hann gaf Helgu dóttur sína
Áni inum ramma ok fylgði henni
hciman öll in nyrðri strönd
Seyðisfjarðar til Vestdalsár. ísólfr
hét sonur Bjólfs, er þar bjó síðan
ok Seyðfirðingar eru frá komnir.“
Ekki fara miklar sögur af Bjólfi
þessum aðrar en þær sem Land-
náma getur um. Hinsvegar er ann-
ar Bjólfur til sem orðinn er gamall
mjög þótt hvergi sé hann farinn að
bogna. Það er fjallið sem gnæfir
innst við Seyðisfjörð norðanverð-
an. í fomum heimildum er þetta
fjall stundum nefnt Býhóll.
Úr Bjólfi hafa fallið mörg snjó-
flóð og aurskriður sem valdið hafa
miklu tjóni bæði á fólki og fast-
eignum. Nægir þar að nefna sem
dæmi snjóflóðið sem féll árið 1895.
Það varð 24 mönnum að bana,
slasaði fjölmarga og sópaði 14
húsum á sjó út. Það féll á svip-
uðum stað og nú stendur síldar-
bræðsla ísbjarnarins.
Um aldamótin síðustu var
Seyðisfjörður einn mesti upp-
gangsstaður á öllu landinu, að
Reykjavík undanskilinni. Þar var
rekin umfangsmikil verslun, út-
gerð og fiskverkun, prentsmiðja,
hótel og skólar svo eitthvað sé
nefnt. Þar voru gefin út blöð og
prentaðar bækur. Ekki er á neinn
hallað þótt Norðmanninum Otto
Wathne séu þökkuð þessi umsvif
öðrum mönnum fremur. Honum
hefur verið reistur minnisvarði á
Seyðisfirði.
Þegar ég ek yfir Fjarðarheiði
áleiðis til Seyðisfjarðar er loftið
heiðskírt og sólin tekin að bræða
nýfallinn snjóinn. Loksins höfum
við fengið sumarið, segja menn.
Það var ekki seinna vænna.
Þriggja vikna stórrigningar hafa
tekið á taugarnar.
Símasamband við
útlönd fyrir 75 árum
í dag er 29. september.
Við skulum staldra við á Fjarð-
arheiði og hverfa 75 ár aftur í
tímann.
29. september 1906. Þann dag
komst á ritsímasamband milli
Reykjavíkur og útlanda í gegnum
sæstreng sem tekinn var í land á
Seyðisfirði. Seyðisfjörður varð því
miðstöð landsins við hinn stóra
heim.
Þótt öllum finnist sjálfsagt í dag
að sæsími liggi frá íslandi til ann-
arra landa, voru menn ekki á eitt
sáttir um þessa nýjung fyrir 75
árum. Á fyrsta þingi heimastjórn-
artímans, árið 1905 var mest og
Mynd af Seyðisfirði nútímans tekin frá dæmigerðu sjónarhomi ofan af Fjarðarheiði.
VÍKINGUR
25
Ad austan