Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.10.1981, Síða 27

Sjómannablaðið Víkingur - 01.10.1981, Síða 27
harðast deilt um svokallað síma- mál. Hannes Hafstein, sem þá var ráðherra, hafði gert samning við danskt félag, „Mikla norræna rit- símafélagið“, um lagningu ritsíma til íslands. Sæsímastrengur skyldi lagður til Seyðisfjarðar, en þaðan landlína um Akureyri til Reykja- víkur. Landlínan var ekki hvað síst mikilvæg, því að samband komst á milli fjarlægra landshluta til ómetanlegs gagns í viðskiptum ogframkvæmdum. Samningurinn við „Mikla norræna" var mjög umdeildur á Alþingi, því stjórn- arandstæðingum þótti hann vera landsmönnum of dýr. Þeir bentu á, að ný tækni væri að ryðja sér til rúms, sem kölluð væri loftskeyti og yrði loftskeytasamband milli Islands og útlanda mun ódýrara en sæsími. Enska Marconifélagið gerði íslendingum tilboð sem hneig í þessa átt og það lét reisa móttökustöð fyrir loftskeyti á Rauðarártúni í Reykjavík. En það var ekki aðeins að rit- síminn þætti dýr. Ófáir voru þeir sem höfðu megnustu ótrú á síma- staurum og línum sem strengja átti þvert yfir landið. Þetta gat verið stórhættulegt, auk þess sem hægt væri að hlera öll samtöl með því einu að leggja eyrun upp að þessum staurum. Mikil hætta stafaði líka af rafurmagni því sem hleypa átti á þessar línur; það gat skotist útundan sér og hlaupið bæði í skepnur og menn. Nei, þá var nú betra að hafa þráðlaust samband. Á þessum tíma var um fátt meira talað en síma þennan sem Hannes Hafstein vildi strengja um landið. Allsstaðar þar sem tveir menn komu saman var um þetta rætt og voru menn ekki á eitt sáttir. Niður með ráðherrann! Hið eftirminnanlegasta í átök- unum um símamálið var hópreið bænda úr5 sýslum til Reykjavíkur til þess að mótmæla símanum. Þeir komu til bæjarins á ákveðn- um degi um hásláttinn, héldu fund og gerðu samþykktir. Voru þær á þá lund að skora á ráðherra að hætta við samninga sína við „Mikla norræna" og semja þess í stað um loftskeytasamband. Samþykktir fundarins voru færðar ráðherra í Stjórnarráðið og söfnuðust bændur saman við bygginguna, en bæjarmenn dreif að. Þarna var mikill mannfjöldi samankominn. Þegar það spurðist að ráðherra hefði hafnað tilmæl- um Bændafundarins, hitnaði mönnum í hamsi og mátti þá heyra hrópað; „Niður með ráð- herrann! Niður með þá stjórn sem ekki virðir þjóðarviljann!“ Þessi mynd sýnir hvernig gat verið umhorfs á Seyðisfirði sumarið 1962. (ljósm. Haraldur Sigurðsson). VIKINGUR 27

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.