Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.10.1981, Síða 36

Sjómannablaðið Víkingur - 01.10.1981, Síða 36
álitlegt línufiskirí hér norður á Víkunum, svo við skiptum yfir. Það er óhætt að segja að sumarið sé búið að vera óvenju gott hjá okkur. Á undanförnum árum hefur yfirleitt ekki þýtt að reyna með línu fyrr en komið er fram á haustið, en í sumar brá svo við að mikill línufiskur var hér fyrir utan. Við höfum róið með þetta 15 bala, það eru 400 krókar í balanum, og sótt norður á Víkur. Þangað er tæplega þriggja tíma stím. Ég spurði hvort ekki hefði verið einhver fiskur undir Bjarginu. — Ég ræ aldrei undir Bjarg, svaraði Gústi um hæl. Ég reyndi það hér á árum áður en varð aldrei var. í þau skipti sem strák- amir hafa viljað fara þangað, hef ég alltaf farið í koju, breitt upp fyrir haus og látið þá um Bjargið. En þar höfum við aldrei fengið fisk. Við erum búnir að fá á annað hundrað tonn frá því í byrjun júní . . . og ekki farið nema einn róður í september. Það eru svoddan hel- vítis ógæftir alltaf hreint. En þetta var ágætt í sumar meðan hægt var að stunda það, við fengum upp í rúm fimm tonn í róðri. Hér í gamla daga var þetta aldrei neitt fyrr en leið á sumarið og kom fram á haust. Ég man eftir því til dæmis árið 1946. Þá vann ég við fiskmóttöku hérna úti á Pöntun. Það var ekkert að gera hjá okkur fyrst um sumarið, ekki fyrr en komið var fram í ágúst. Þá fór aflinn að glæðast . .. og þannig hefur þetta yfirleitt verið þar til í sumar. Það var töluverð smábátaút- gerð hér á þessum árum, á meðan Hánefstaðarbátarnir voru gerðir út og fleiri. En útræði var hér utar í firðinum og því styttra að sækja. En svo varð mikill samdráttur í þessu . . . byggðin hér út með firðinum fór mikið til í eyði, fólk fluttist í burtu. Nú nú, síðan kem- ur síldin og allir þekkja þá sögu. Aukin smábátaútgerð frá Seyðisfirði Gústi telur að á síðastliðnu sumri hafi verið gerðir út um 25 smábátar frá Seyðisfirði. Trilluút- gerð hefur aukist mjög á undan- fömum 2—3 árum. Af þessum sökum er sú staða komin upp að viðlegupláss vantar fyrir þessa báta. — Það er helvítis ástand á þessu. Maður er alltaf að flýja á milli bryggjanna. Nú síðast í morgun var hringt í mig og mér skipað að færa mig frá Esso- bryggjunni. Við höfum rætt um að stofna hér smábátafélag sem m.a. gegndi því hlutverki að knýja á um smábátahöfn og bætta að- stöðu fyrir þessa báta. Það er alveg nauðsynlegt. Maður veit svo sem að smábátahöfn kemur ekki átakalaust. Kallamir með skjala- töskurnar þurfa nú líklega að velta einum bryggjusporði fyrir sér í nokkur ár áður en þeir skilja um hvað málið snýst, sagði Ágúst Sigurjónsson að lokum G.A. 36 VÍKINGUR

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.