Sjómannablaðið Víkingur - 01.10.1981, Page 37
Mjög ánægöur
meö bátinn
— Aðalbjörn Haraldsson naut góðs af lestri Víkings!
— Þetta byrjaði allt með því að
ég var að fletta Sjómannablaðinu
VÍKINGI árið 1967. Ég var með
7. tölublað í höndunum og rakst
þar á mynd af stálbáti sem smíð-
aður var í Bretlandi. Með mynd-
inni fylgdi svolítil grein sem vakti
forvitni mína. Ég hringdi suður í
Guðmund Jensson sem þá var
ritstjóri og spurði hann nánar út í
þessa grein. Hann sagðist ekki vita
neitt meira um þetta en standi í
blaðinu, Jónas stýrimaður hafi
þýtt greinina en hann sé ekki við-
látinn.
Aðalbjörn Haraldsson á Seyð-
isfirði segir mér þetta þegar ég
spyr hann út í 11 tonna stálbát sem
hann á. Og hann heldur áfram að
rekja söguna:
Smyrill helmingi
ódýrari en Eimskip
og Sambandið
— Næsta skref var að tala við
verslunarfulltrúa í breska sendi-
ráðinu. Hann sagði mér að það
væri ekki vaninn hjá þeim að veita
fyrirgreiðslu við svona hluti og
vildi helst ekki gera neitt í málinu.
Nú, nú, ég hringi aftur í Guð-
mund en hann skipar mér að
reyna betur við verslunarfulltrú-
ann. Ég geri það og er hann þá
öllu viðræðubetri. Ég hugsa að
Guðmundur hafi rætt við hann í
millitíðinni. Fulltrúinn sagði mér
að hann væri á förum til Englands
og hann skyldi hafa þetta á bak
við eyrað.
Síðan líður mánuður og þá
hringir hann til mín. hann hafði
haft samband við skipasmíða-
stöðina sem smíðaði þessa báta,
en þeir væru að flytja þessa dag-
ana. Þegar þeir væru búnir að því
fái ég að heyra frá þeim.
Svo kemur bara bréf þar sem ég
er spurður að því hvað sé hægt að
gera fyrir mig. Til að gera langa
sögu stutta þá endaði þetta með
því að ég festi kaup á þessum báti,
eftir að ég hafði fengið verðtilboð
frá fyrirtækinu. Síðan fékk ég
hann fluttan með Smyrli. Það var
meira en helmingi ódýrara en hjá
Eimskip og Sambandinu. Þeir
skiluðu skrokknum hingað heim á
hlað. Það var árið 1978.
Vélin var ekki sett niður þegar
hann kom. Það er 120 ha. Ford.
Aðalbjörn Haraldsson í brúnni á Guðnýju NS 7.
VÍKINGUR
37
Ad austan