Sjómannablaðið Víkingur - 01.10.1981, Blaðsíða 42
Skrifctofan aö Brekkustíg 4 sér um
mál skipstjómarmanna og vélstjóra á
svæðinu frá Húnaflóa tíl Vopnafjarðar
Seinustu dagana í október var
undirrituð stödd á Akureyri og leit
inn á skrifstofu Vélstjórafélags ís-
lands og Skipstjórafélags Norð-
lendinga sem Guðmundur Stein-
grímsson heldur gangandi í því
gamla og virðulega húsi að
Brekkugötu 4 sem Kristján
Kristjánsson fyrsti eigandi
Ford-umboðsins átti.
Guðmundur sagði það fara
ágætlega saman að reka eina
skrifstofu fyrir bæði félögin en oft
er mikið að gera því hann er eini
starfsmaðurinn. Félagsmenn í
hvoru félagi eru um 250 og nær
félagssvæðið frá Flúnaflóa til
Vopnafjarðar. Störfin á skrifstof-
unni felast í innheimtu og al-
mennum þjónustustörfum við fé-
lagsmenn varðandi túlkun kjara-
samninga o.þ.h. en félagsmenn
mættu gera meira af því að hafa
samband þó ekki sé um brýn er-
indi að ræða heldur til að skiptast
á skoðunum um ástand mála í at-
vinnugreinunum, sagði Guð-
mundur.
Hvað Vélstjórafélagið áhrærir
kvað Guðmundur alla stjórn þess
fara fram í Reykjavík og fyndist
sér ástæða til að kanna hvort ekki
sé grundvöllur fyrir því að stofna
deildarstjórnir í öðrum landshlut-
um til að auka tengsl milli manna
og skoðanaskipti. Það fer engin
félagsstarfsemi fram hjá vélstjór-
um á Norðurlandi. Ef þá langar á
árshátíð verða þeir að fara til
Reykjavíkur og fundahöld eru
alltof fátíð. Reyndar eru ekki allir
starfandi vélstjórar í Vélstjórafé-
42
laginu því á minni stöðum eru
menn í viðkomandi Verkalýðsfé-
lögum í sjómanna- eða vélstjóra-
deildum. Það er miklu heppilegra
fyrir menn að ganga í félagið sjálft
því þar er fjallað um almenn rétt-
indamál stéttarinnar en ekki bara
kauptaxta eins og í Verkalýðsfé-
lagadeildunum. Einnig skiptir það
miklu máli þegar rætt er um inn-
göngu manna í félagið að ákvæði
um atvinnuréttindi vélstjóra í
landi vantar algjörlega. Atvinnu-
rekendur eru ekki skyldir til að
ráða lærða vélstjóra í fiskvinnslu-
fyrirtæki t.d. þannig að mikið er
um að menn séu í þessu starfi án
vélstjóramenntunar. Taldi Guð-
mundur einnig brögð að því að
menn væru lögskráðir á skip án
þess lögskráningarstjórar hefðu
vissu fyrir því að próflausir menn
hefðu undanþágu. Á það bæði við
um vélstjóra og stýrimenn.
Að standa við uppsögn
Skipstjórafélag Norðlendinga
heldur uppi þó nokkru félags-
starfi. Stjórn þess er skipuð
mönnum af svæðinu og haldnir
eru félagsfundir þegar tilefni gef-
ast, árshátíð og jólatré. Formaður
þess er Gunnar Arason. Guð-
mundur sér um að senda félags-
mönnum þess skrár yfir fiskverð,
kaupskrár, reikninga félagsins og
félagatal í pósti til að auðveldara
sé fyrir þá að fylgjast með sínum
málum. Félagar eru nær allir
skipstjórnarmenn á fiskiskipum
þess vegna ráða fleiri þættir en
bein kauptrygging þeirra kjörum,
t.d. fiskverð, aflatakmarkanir o.fl.
VÍKINGUR