Sjómannablaðið Víkingur - 01.10.1981, Qupperneq 48
síður undarlegt, en það sem á
undan var gengið.
Ekkert frásagnarvert gerðist
annað í þessari ferð, nema að sá
skjótti stóð við bæjarvegg í Ási,
sem hann biði eftir mér og var það
honum ólíkt eins og ég gat um í
upphafi. Sagði ég heimafólki fátt
um ferð mína, enda óttaðist ég
heldur að verða mér til athlægis,
þar sem enginn myndi trúa sögu
minni, en ef ég léti sem ekkert
væri. Hélt ég heimleiðis árla næsta
dag með hrossin og bar ekkert til
tíðinda í þeirri reisu.
Það gerist næst að um fardaga
kom í heimsókn hálfbróðir minn,
sem réðst í póstflutninga fyrir
vestan, en hann var mikill
kvennamaður og orðhvatur og
fullur að undarlegum afrekssög-
um frá ferðum sínum. Sagði hann
mér hvað hefði á daga sína drifið
og var það ótrúlegt sem óskiljan-
legt, en þó í engan máta svo yfir-
náttúrlegt eða guðlaust, sem það,
er ég hafði orðið vitni að. Gat ég
þá ekki á mér setið, bað hann að
tala við mig einslega og sagði
honum allt að létta. Hann hlustaði
íbygginn, lagði kollhúfur og velti
fyrir sér frásögninni. Þegar ég
hafði skýrt honum skilmerkilega
frá öllu, þagði hann um stund, en
sagði svo: Geturðu ekki látið þau
vera að éta mannakjöt og sagt svo
að þú hafir hrundið grjótskriðu
yfir þau, í stað þess að hlaupa í
burtu?
Við ræddum þetta ekki frekar,
en um haustið fékk ég bréf frá
honum með landspóstinum. Þar
voru þessar vísur:
Tröllin kela í klettasprungum
á kaldranalegum vetrardegi.
Skessurnarþukla áþrútnumpungum
og þrátta um hversé næsturmegi.
Urra og frýsa fólin grimmu
með fruntagelt og hásu góli.
Veit ég ekki verri rimmu
á Vesturlanda byggðu bóli.
Mígur hvert í annars eyra
orga svo sem best þau geta,
klípa hart í holdið meyra
hrækja, öskra, æla og freta.
Utanúr
Svo sterkur er Kloster.
Norwegian Caribbean Lines
(Knut Kloster) með skemmti-
ferðaskipin Starward, Sky-
ward, Southward, Sunward 11
og Norway (France) hefur
41,9% af markaðnum banda-
ríska, allir hinir til samans hafa
59,1%. Kloster byrjaði 1966
með Sunward.
Yfirmannaskortur hrjáir
danska flotann
Fyrsta nóvember sl. vantaði 132
stýrimenn, og 166 vélstjóra á
danska kaupskipaflotann. A.P.
Moller einan vantar 100 vélstjóra,
og býður upp á æviráðningu, að
reynslutíma loknum. Eftir sein-
ustu kauphækkun eru laun yfir-
vélstjóra ca. 240 þúsund kr. með 8
mánuðum um borð og 4 í landi.
Kaup yfir stýrimanna ca. 10—15%
lægra, en yfirvélstjóranna.
Siglingafloti Norður-Evrópu-
manna
minnkar hröðum skrefum
Hlutfall Norður-Evrópumanna
af heimsflotanum hefur á sein-
ustu 10 árum lækkað úr 31%
niður í 18%. Á sama tímabili
hefur hlutur „þægindafán-
anna“ (flag of convenience)
vaxið úr 19% í ca. 30%.
Lausn á
krossgátu
úr seinasta
bladi
48
VIKINGUR