Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.10.1981, Page 49

Sjómannablaðið Víkingur - 01.10.1981, Page 49
Fjölgun nemenda í Stýrimannaskólanum fer alltaf saman vid gódæri í landinu Spjallaö viö Guöjón Á. Eyjólfsson, skólastjóra í Reykjavík eru tvö kennileiti sem auðvelt er að miða við fyrir utanbæjarmenn, Hallgrímskirkja og Sjómannaskólinn. Turnar þessara tveggja húsa sjást víða að og gnæfa yfir lægri byggingar sem í kringum þá eru. Reyndar er klukkan á Stýrimannaskólanum miklu betri að því leyti að á hana sést úr mikilli fjarlægð en í kirkjuklukkunni er gullið svo mikið að allt rennur saman við ljósan lit tumsins. En hvað leynist innan veggjanna? Við látum bíða að skýra frá hvernig umhorfs er inni í Hallgrímskirkju en ætlunin er að líta inn fyrir veggi Sjó- mannaskólans og gefa lesendum hlutdeild í því. Reyndar er líklegt að flestir les- endur blaðsins séu kunnugri því en undirrituð hvernig er umhorfs og hvað fer fram í þessu stóra húsi en eflaust eru líka til ungir menn og konur sem finnst þetta hús spennandi og hugsa sér jafnvel að kynnast því nánar með því að setjast þar á skólabekk og helga þar með líf sitt því sem ekki er síður spennandi í hugum ungra, sjómennskunni. Það fer ekki á milli mála að Sjómannaskólinn er gömul stofn- un. Á veggjum hans hanga myndir af nemendum sem stunduðu þar nám allt frá því fyrir aldamót. Reyndar ekki allatíð í húsinu með turnunum en það hús mun hafa verið tekið í notkun fljótlega upp úr 1940. Það er eitthvað gamal- gróið og virðulegt við þessar myndir á veggjunum af nánast öllum skipstjórnarlærðum mönn- um sem stundað hafa sjómennsku og siglingar við íslandsstrendur. Og þeir eru ekki fáir. Sumir hafa farist við störf sín, greitt fyrir starfið og baráttuna með lífi sínu. Aðrir eru gamlir menn á Hrafn- istu en fjöldinn stendur í eldlín- unni í dag. Stjórnar í brúnni við fengsælar veiðar, gefur óvinsælar skipanir, stendur virðulegur og óhagganlegur við stjórnvölinn á kaupskipunum, stundar gæslu- og hjálparstörf í kringum landið. Allir hafa þeir einhvem tíma byrjað ungir og óreyndir í þessum skóla. í dag stunda um 140 ungir menn nám við Stýrimannaskól- ann í Reykjavík. Állir hafa þeir lokið 24 mánaða starfstíma á sjónum eins og tilskilið er við inn- göngu í skólann en langar að læra meira, afla sér starfsréttinda um borð. En hefur staða Stýrimanna- skólans í íslensku menntakerfi farið versnandi? Er ekki litið á það sem nauðsynlegan og mikilvægan hlut fyrir þjóðina að mennta sem best þá menn sem eiga eftir að bera ábyrgð á lífæð þjóðarinnar, fiski- og kaupskipaflotanum? — Það þykir miklu fínna í dag að stofna innflutningsverslun við Laugaveginn en að mennta sig til skipstjóra, segir skólastjóri Stýri- mannaskólans í Reykjavík, Guð- jón Ármann Eyjólfsson. — Það verður að líta á sjómennskuna 49 Guðjón Ármann, skólastjóri. „Það verður að fást viðurkennt að sjómennska er sérhæft fag eins og hver önnur iðn. VÍKINGUR

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.