Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.10.1981, Page 51

Sjómannablaðið Víkingur - 01.10.1981, Page 51
sem hvert annað sérhæft fag sem þarf menntun og reynslu til að starfa við. Þú mundir vera talinn eitthvað skrýtinn ef þú bæðir um leyfi til að keyra bíl án þess að hafa bílpróf; það virðist hins vegar ekki eins alvarlegt ef þú ætlar að sigla skipi á hafinu; heldur Guð- jón Ármann áfram og líkar aug- sjáanlega ekki. Guðjón Ármann tók við starfi skólastjóra Stýrimannaskólans sl. haust og við byrjum á að spyrja hann um hann sjálfan. Skólastjóri í Vestmannaeyjum fram að gosi — Ég er fæddur í Vestmanna- eyjum 10. janúar 1935 og dvaldi þar öll mín bernsu- og uppvaxt- arár. Ég byrjaði 16 ára gamall á sjó, á reknetum og stundaði sjóinn á sumrin meðan ég var í mennta- skóla. Stúdentsprófi lauk ég úr M.R. 1955 úr máladeild og úr slærðfræðideild ári síðár vegna þess að stærðfræðideildarprófs var krafist inn í sjóliðsforingja- skólann sem ég fór í í Danmörku. Þar var ég svo í fimm ár g lauk þaðan bæði skipstjórnar- og sjó- liðsforingjaprófi. Á skólaárunum VÍKINGUR var ég á skipum danska flotans og lagði sérstaka áherslu á sjómæl- ingar. Eftir að ég kom heim var ég í eitt ár hjá Landhelgisgæslunni m.a. við sjómælingar en fór til Vestmannaeyja 1962. Haustið áður lauk ég prófi á fyrsta nám- skeiði Iðnaðarmálastofnunarinn- ar í vinnuhagræðingu. Næstu tvö ár vann ég sem framleiðslustjóri og aðstoðarframkvæmdastjóri hjá frystihúsunum í Vestmannaeyj- um. 1964 var svo Stýrimanna- skólinn í Vestmannaeyjum stofn- aður, í beinu framhaldi af nám- skeiðum sem ég kenndi á og veittu 120 tonna réttindi. Ég var skóla- stjóri skóltms allt frá stofnun hans og fram að eldgosi. Reyndar héldu nemendurnir áfram hér í Reykjavík sem byrjaðir voru út í Eyjum fyrir gos þannig að ég út- skrifaði síðustu nemendur mína vorið 1974. Um haustið 1975 var ég síðan skipaður kennari hér við Stýrimannaskólann og hef kennt hér síðan. Ný handbók fyrir skipstjórnar- menn — Er kennslan þitt helsta áhu- gamál? — Ég hef fengist töluvert við að skrifa. Ég sá um Sjómanna- dagsblaðið í Vestmannaeyjum í tíu árog skrifaði bók um eldgosið, Vestmannaeyjabyggð og eldgos, heitirhún. Nú ervæntanleg önnur bók sem ég geri mér vonir um að verði að gagni fyrir sjómenn. Hún er um siglingareglur og stjórn skipa o'g nefnist Stjórn og sigling skipa. Ég vona að hún geti orðið handbók fyrir skipstjórnarmenn. í henni er sagt frá nýju sjómerkja- kerfi sem verið er að taka upp og talað um aðskildar siglingaleiðir. Ég tel þörf á slíkri bók á íslensku. Fer á sjó á sumrin — Hefurðu ekkert verið á sjó síðan þú laukst prófi? — Jú, ég hef verið að gutla við þetta á sumrin. Ég var tvö sumur við Jan Mayen á síldveiðum og hef verið á togskipum frá Vest- mannaeyjum sem háseti og stýri- maður. Mér finnst nauðsynlegt að fara alltaf á sjóinn við og við. Ég hefði bara þurft að komast á fragtskip til að kynna mér lífið þar. Það var t.d. óskaplega góður skóli að fara á togara og kynnast þeirri tegund sjómennsku. Ég var á Ögra einu sinni um tíma. Ég ætla mér líka að kynna mér sem best stýrimannaskóla í ná- grannalöndunum. Það er nauð- synlegt að fylgjast með því sem þar er að gerast. En skólastjóri hefur kennsluskyldu svo maður verður að nota sumrin í þetta. Fyrirrennari minn í starfinu hélt uppi góðu sambandi við sams konar skóla á Norðurlöndum. Prófin virt á alþjóðavettvangi — Eru próf héðan virt í öðrum löndum? Já, já, skólinn stendur fyllilega jafnfætis stýrimannaskólum á Norðurlöndum og öðrum ná- grannalöndum. Það er t.d. Indó- nesíumaður hérna núna að ná sér í alþjóðaskírteini sem tekin eru gild 51

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.