Sjómannablaðið Víkingur - 01.10.1981, Qupperneq 59
stýrimaðurinn“, sagði Guðmund- sem þessara. Þetta yfirlit er ekki bendingu um það sem rætt var á
ur. tæmandi sökum plássleysis í fundinum.
blaðinu en gefur vonandi vís- E.Þ.
Björgunaræfingar
Sigurbjörn Guðmundsson
sagðist hafa verið 10 ár á íslensk-
um kaupskipum og verið við-
staddur þrjár björgunaræfingar
allan þann tíma. Á Norðurlönd-
um eru lögbundnar björgunar-
æfingar einu sinni í mánuði og ef
lA hluti áhafnar er nýr, fær skipið
ekki að halda úr höfn án þess að
hafa æfingu. Skipafélögin verða
bara að taka því þó þeir þurfi að
borga mönnum fyrir að mæta á
þessar æfingar. í Danmörku eru
skoðunarmenn sem koma ófor-
varindis og geta stoppað skipin
ef eitthvað er ábótavant. Sigur-
bjöm spurði einnig hvort ekki
væru til lög um hve þétt megi stúa
í lestir bílferja hér á landi. „Það er
stúað svo þétt að ef eldur yrði laus
væri ógerningur að komast að
með slökkvitæki", sagði Sigur-
bjöm.
Ingvar Einarsson spurði hvort
ekki væri væntanleg reglugerð um
sjónvarpsaugu í lest og vélarrúm
sem væru nauðsynleg til að fylgj-
ast með t.d. vélamanni sem gæti
slasast einn á vakt og eins ef mis-
hleðsla kemst á millidekk.
Hjálmar taldi heilladrýgra að
menn hefðu sjálfir áhuga á björg-
unaræfingum heldur en að setja
lög þar að lútandi. Hann kvað
40—60 skoðunarmenn vera stað-
setta úti á landi en samt þyrfti
sérfróða skoðunarmenn að sunn-
an við og við og peningaleysi háir
þeim skoðunum. Ekki eru til nein
lög um hleðslu bílferja og ekki
heldur um sjónvarpsaugu en
mótmæli hafa borist gegn þeim á
þeim forsendum að þau yrðú not-
uð af skipstjóra til að reka á eftir
mönnum við vinnu.
Fundi var slitið rétt fyrir sjö en
eflaust hefði verið hægt að ræða
þessi mál lengur. Hinn nýi salurer
ágætl'ega fallinn til fundahalda
VÍKINGUR
Tilkynning frá
Fiskveiðasjóði
íslands
Á árinu 1982 verða veitt lán úr Fiskveiðasjóði íslands til
eftirtalinna framkvæmda í sjávarútvegi:
1. Til framkvæmda í fiskiðnaði
Við lánveitingar til framkvæmda í fiskiðnaði veröur eink-
um lögð áhersla á arðsemi framkvæmdanna og að bæta
þær fiskvinnslustöövar sem fyrir eru þannig, að þaö leiði
til aukinnar hagkvæmni í rekstri og bættrar nýtingar
hráefnis og vinnuafls. Einnig skal þess gætt, að sem
mest samræmi sé milli veiða og vinnslu.
2. Til fiskiskipa
Lán veróa veitt til skipta á aflvél og til tækjakaupa og
endurbóta, ef talið er nauðsynlegt og hagkvæmt.
Umsóknir um lán til nýbygginga innanlands eöa skipa-
kaupa erlendis frá skulu berast fyrir tilskilinn tíma, en
óvíst er enn um lánveitingar.
Allar eldri umsóknir þarf aö endurnýja og gildir þá einu
hvort lánsloforö hefur verið veitt eða ekki. Gera þarf ná-
kvæma grein fyrir hvernig þær framkvæmdir standa sem
lánsloforð hefur verið veitt til.
Umsækjendur um ný lán svo og þeir sem endurnýja eldri
umsóknir, skulu skila umsóknum sínum á þar til gerðum
eyðublööum, ásamt þeim gögnum og upplýsingum sem
þar er getió, að öörum kosti veróur umsókn ekki tekin til
greina. (Eyðublöðin fást á skrifstofu Fiskveiðasjóðs Is-
lands, Austurstræti 19, Reykjavík, svo og í ýmsum bönk-
um og sparisjóðum utan Reykjavíkur).
Umsóknarfrestur er til 1. desember 1981.
Umsóknir er berast eftir þann tíma verða ekki teknar til
greina við lánveitingar á árinu 1982, nema um sé að
ræöa ófyrirséð óhöpp.
Lánsloforð Fiskveiðasjóðs skal liggja fyrir, áður en fram-
kvæmdir eru hafnar.