Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.10.1981, Blaðsíða 61

Sjómannablaðið Víkingur - 01.10.1981, Blaðsíða 61
„Höfum oft óskad þess aö hafa Þorstein Pálsson sem feröafélaga...” r — segir Páll Hermannsson formaður Stýrimannafélags Islands í viðtalinu við nemendur Stýri- mannaskólans kom fram að laun stýrimanna á farskipum eru lítið spennandi og atvinnuhorfur ungra manna sömuleiðis. Við náðum tali af Páli Hermannssyni formanni Stýrimannafélags íslands og báð- um hann að gera svolitla grein fyrir því hverju þetta sætti. Viðtal okkar fór fram sama dag og f undur í félaginu hafði verið boðaður um kvöldið. Á þeim fundi var ætlunin að ræða kjaramál og uppsögn samninga og bjóst Páll fastlega við því að samþykkt yrði að segja upp. Samningar verða því líklega lausir 30. nóvember. Skólinn borgar sig ekki f járhagslega — Það hefur allatíð verið vin- sælt umræðuefni meðal nemenda og nýútskrifaðra stýrimanna að fjárhagslega tapa þeir á að fara í skólann. Það má telja það fimm ár sem fara í að afla sér réttinda, þar af kauplaust nám í þrjá vetur. Þegar skóla er lokið fara þeir svo á 16% lægra kaup en maður sem hefur enst í starfi í fimm ár og er orðinn bátsnraður. Menn hafa löngum sagt að stýrimenn verði seinna skipstjórar og fari þá á hærra kaup en það eru mjög margir sem aldrei verða skipstjór- ar, hætta starfi löngu áður. Það var kannski hægt að segja þetta þegar keypt voru ný skip í hverj- um nránuði á árunum 1974—77. Þá var algengt að menn hlypu yfir 1. stýrimanns tímann og yrðu skipstjórar, vegna þess hve skip- unum fjölgaði ört. í dag er flotinn minni en hann hefur verið sl. finrm ár. Þróunin er sú að skipin verða stærri og afkastameiri og þ. a. 1. færri. Þetta þýðir það að ef þessir ungu menn fá á annað borð pláss, eiga þeir eftir að sigla á 3. stýrimannslaunum í ansi langan tíma. Fullyrðingin um að óþarfi sé að gera vel við stýrimenn því þeir verði brátt skipstjórar er því að falla um sjálfa sig. Óánægja með launin — Það gætir vaxandi ólgu meðal stýrimanna varðandi kaup og kjör. Yfirtíð hefur haldið mönnum á floti lengi vel en und- anfarið hefur hún verið skorin niður í eins lítið og hægt er af út- gerðarmönnum. T.d. virðist stefn- an sú hjá Eimskipafélaginu að 3. stýrimenn hafi enga yfirtíð. Ég skil ekki hvernig menn geta lifað af þeirn launum. — Eruð þið búnir að móta kaupkröfur? — Nei, þær hafa ekki verið fullmótaðar en ég get fullyrt það að þess verður krafist að ábyrgð, menntun og starfsreynsla verði metin til launa. Við förum fram á að lægsti stýrimaður fái 16% hærra kaup en bátsmaður eftir fimm ár. Það er um 32% kaup- hækkun. Við kjósum líklega samninganefnd á fundinum í kvöld. Ég býst við að kröfurnar verði ekki í mörgum liðum að þessu sinni. Sjóálag — vaktaálag — Hafið þið oft borið mikið úr býtum eftir samningaþóf? — Eftir langt verkfall 1979 var okkur dæmt svokallað sjóálag sem útgerðarmenn vildu alls ekki kalla vaktaálag. Það hafa margir túlkað þetta sem kynlífsuppbót svo við eigum enn eftir að fá vaktaálag viðurkennt. í landi er greitt vaktaálag fyrir öll þau óþægindi sem óreglulegur vinnutími hefur í för með sér. Ég veit ekki um neina stétt á tímakaupi sem hefur meiri óþægindi í starfi vegna vinnutíma og vinnustaðar en farmenn. Við söknum þess oft að hafa ekki Þorstein Pálsson og þessa kappa sem halda því fram að við höfum engan rétt á vaktaálagi, sem ferðafélaga þegar við erum búnir að vera sjö daga að þvælast yfir Atlantshafið, leið sem venjulega tekur fjóra daga að sigla. í af- takaveðri er þetta óskaplegt álag. VÍKINGUR 61
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.