Sjómannablaðið Víkingur - 01.10.1981, Side 62
Það er heldur ekki nóg að við
stöndum vaktir heldur eru þær
breytilegar. Þegar lagt er úr höfn
stöndum við átta tíma vaktir en
þegar dvalið er í höfn er maður
allt í einu kominn á dagvaktir sem
geta staðið í sólarhring, þ.e. allt
annað kerfi en var út á sjó.
Aðstæðurnar á vinnustað eru
líka slæmar. Vistarverur eru litlar
og vélaloftræstingin er heilsu-
spillandi að mínu mati. Maður
getur aldrei opnað glugga og
fengið ferskt loft. Einhæfnin sem
vinnu- og hvíldarstaðurinn býður
upp á er mjög þreytandi. Menn
fara ekkert og gera ekkert jafnvel
prjónaskapur er útilokaður á
vetrum því veður eru það vond
stærstan hluta tímans. Menn geta í
hæsta lagi skorðað sig af með bók
og ef maður leggur hana frá sér er
hún flogin. Þessar fjarvistir og
einangrun hljóta að geta talist
verð þess að fá vaktaálag borgað.
Verkstjórn og málakunnátta
— Hefur þú hugmyndir um
bætta kennslu í skólanum?
— Stýrimannsstarfið gerir
miklar kröfur til manna. Sá þáttur
sem hefur verið hvað mest van-
ræktur í skóla en er einn stærsti
hluti starfsins, er verkstjóm. Við
fáum að vísu stutt námskeið sem
er mjög til bóta en það þyrfti að
leggja á það meiri áherslu. Að vísu
lærist þetta með reynslunni en ef
það prinsipp á að vera ríkjandi
gætum við sleppt öllum skólum.
Það eru ákveðnir hlutir sem auð-
velt er að kenna í þessu sambandi.
Annað er það sem okkur var ekk-
ert kennt en er víst eitthvað byrjað
á núna, um pappírsvinnu og sam-
skipti við land, við verkstjóra og
afgreiðslumenn. Menn lenda oft í
því reynslulitlir í erlendum höfn-
um að skrifa undir skjöl og skuld-
binda þar með útgerðina um
ýmislegt. Þú getur lent í að fá blað
á belgísku eða rússnesku sem þú
átt að skrifa undir. í skólanum eru
62
menn saman í bekk sem ætla sér í
farmennsku og fiskimennsku. Það
er því mismunandi mikilvægt í
þeirra augum að kunna tungumál.
Það má nefna 30 atriði sem mikil-
vægt er að stýrimenn séu vel að sér
í en málakunnátta og verkstjórn
eru þar mikilvægustu þættirnir.
Meiri kröfur við inngöngu
— Finnst þér eigi að leggja
rneiri áherslu á málanámið?
— Mér finnst þurfa að gera
meiri kröfur til manna áður en
þeir koma inn í skólann. Guðjón
Ármann þurfti t.d. að hafa stærð-
fræðideildarstúdentspróf til að
komast inn í skólann sem hann fór
í. Ég veit að í skóla fyriryfirmenn í
Ameríku verða menn að hafa há-
skólapróf.
Stýrimannaskólinn er sérskóli
og annað hvort þarf að bæta neð-
an við hann eða taka innan úr
honum kennslu í undirstöðu-
greinum svo hægt sé að sérhæfa
námið meira.
— En nú fer nám í farmennsku
og fiskimennsku að mörgu leyti
ekki saman. Finnst þér ætti að
skipta því meira?
— Eg tel vel athugandi að
skipta 3. stiginu eftir áhugasviði
nemenda þó prófið verði hið
sama. Ég hef t.d. ekki haft nein
not fyrir það sem ég lærði um
meðferð Astics.
Frí 4—6 mánuði á ári
— Hver finnst þér mikilvæg-
ustu mál þinnar stéttar?
— Ég tel mjög mikilvægt að
menn taki meiri frí og teldi til
mikilla bóta ef tækist að koma
upp vaktskrá þannig að menn
fengju ekki að sigla nema ákveðna
mánuði á ári. Það byggist að
sjálfsögðu á því að menn geti leyft
sér það fjárhagslega og þá komum
við aftur að launamálunum. Það
er ekkert skemmtilegt að sigla
með mönnum sem hafa siglt í 12
mánuði án þess að taka sér frí,
menn verða mjög pirraðir. Með
þessu móti héldist útgerðinni
betur á mönnum. Ég tel heppilegt
að byrja á að takmarka siglingar
við átta mánuði á ári og lækka það
smátt og smátt niður í sex mánuði.
Veistu hvernig þetta er í öðrum
löndum?
— Já, ég hef verið iðinn við að
kynna mér það og gekkst fyrir því
að Stýrimannafélagið gekk í Nor-
disk Navigatörs Kongress svo við
gætum lært af því sem er að gerast
hjá þeim og förum ekki að gera
sömu mistök og þeir eru búnir að
gera. í Svíþjóð held ég að sé alsiða
að hafa það einn á móti einum —
einn dag á sjó og einn í landi, þ.e.
sex mánuði á ári. I Danmörku er
fimm til þriggja mánaða samn-
ingsbundið úthald en ekki alveg
fast munstur hve lengi menn eru á
ári en skattalögin hjálpa þeim til
að ákveða það því þeir lenda í
miklum sköttum ef þeir sigla of
mikið. Ég býst við þeir sigli svona
sjö, átta mánuði á ári.
Breytt þjóðfélag
Það er erfitt að bera þetta sam-
an við nágrannaþjóðirnar því þeir
hafa allt öðru vísi lífsmunstur. Á
íslandi gildir þessi manndómsút-
tekt þar sem menn verða að slíta
sér til húðar fyrstu tíu ár fullorð-
insáranna við að koma sér þaki
yfir höfuðið og verða svo andlega
og líkamlega hálf örkumla það
sem eftir er. Þjóðfélagið hefur
breyst mjög mikið síðastliðin ár og
fríþörfin orðið meiri. Það er ekki
langt síðan laugardagur varð al-
mennur frídagur og fólk leyfir sér
mikið meira í tómstundum og
öðru og kröfur um lífsþægindi eru
orðnar meiri.
Farmenn hafa ekki fylgt þessari
þróun. Áður sigldu menn 11,3
mánuði á ári en þá stoppuðu
skipin hálfan mánuð í Reykjavík
eftir hvern túr svo tækifæri gafst
til að vera með sínum nánustu.
Núna stoppa skipin ekki neitt. Það
VÍKINGUR