Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.1992, Blaðsíða 14
LANDALEIT
Næst komu þeir að Ískaríotsklett-
um, sem ekki er nánar vitað um.
Þaðan sigldu þeir í suður og komu
að eyju St. Páls. Það var gróðurlaus
klettur 100 faðmar í þvermál.
Hkyrrt var í sjó, en á einum stað
tókst þeim að setja Brendan á
land.
1 helli uppi á eynni fann hann St. Pál.
Hann hafði að sögn búið þar í 90 ár og
sagðist vera 40 ára að aldri. Hugsan-
lega hefur þetta verið Rock All, sem þá
hefur verið nokkuð stærri en nú. Það-
an sigldu þeir í rúma 40 daga til vest-
urs og komu inn í dimma þoku. Þá
sagði sá er fróðastur var á skipinu að
þokan umlykti landið sem þeir hefðu
leitað að í mörg ár.
Þegar þokunni létti sáu þeir hið feg-
ursta land, með margskonar ávaxta-
trjám. Þar var dýrlegt veður. Þeir voru
komnir til Ameríku. í þessu góða landi
dvöldu þeir lengi.
Síðan héldu þeir enn af stað gegn-
um þokubeltið, þar til þeir konm til
eyjanna þar sem gleði og hagsæld ríkti.
Þetta er talið hafa verið Azoreyjar eða
Kanaríeyjar. Hvort sem það var, er víst
að Brendan vissi til vegar. Þegar hann
hélt jtaðan, sigldi hann heim án vand-
ræða. Það má því ætla að hann hafi
kunnað að sigla eftir stjörnum og haft
einhvern leiðarstein. Þeim var vel
fagnað við heimkomuna til Kerry, eft-
ir 5 ára burtveru á ókunnum slóðum.
Menn töldu að nú ætti Brendan að
halda sig heinta eftir þessa háskaferð.
En það var Brendan ekki að skapi.
Hafið og útþráin tóku hug hans allan.
Hann lét byggja nýtt skip, ólíkt hinu
fyrra. Nýja skipið var byrt sterkum
viði, með þeim besta seglbúnaði sem
þá þekktist, mannað 60 úrvals sjó-
mönnum. Árið 551 sigldi hann úr
höfn. Þegar þeir höfðu siglt röska 40
daga, koniu þeir aftur í þokubeltið og
stórar físklorfur óðu umhverfis skip-
ið. Vindur féll og þeir tóku til ára. Um
síðir konni þeir að stórri eyju þar sem
öldur Atlantshafsins braut með mikl-
um gný. Stór skrímsli með faxi, gráum
augum og ferlegum höggtönnum
lágu á ströndinni og öskruðu að þeim.
Þetta munu hafa verið rostungar og
landið Nýfundnaland eða Labrador.
Brendan féll ekki þetta kalda land.
Þeir sigldu því suður með landinu {
nokkra daga, koniu þá í vog einn og
lögðust við akkeri.
Ðar kont hópur lágvaxinna
dökkra villimanna niður að
ströndinni og létu ófriðlega. Til þess
að forða óhöppum, bannaði Brendan
mönnum sínum að fara í land. Þeir
héldu svo þaðan og koniu til eyjar þar
sem íbúarnir voru friðsamari. Þarna
hittu þeir mann, sent sagðist vera síð-
astur tólf írskra munka er höfðu sest
þar að fyrir mörgum árum. Hann réð
þeim að gæta sín á mergð mannætuhá-
karla við ströndina. Þetta mun hafa
verið ein Bahamaeyjanna. Þegar þeir
héldu þaðan var sumar og blíðuveður.
Næst kornu þeir til undurfagurs
lands. Þar var allt sem hægt var að óska
sér. Þeir voru vissir um að þetta dá-
samlega land væri landið sem þeir
höfðu svo lengi leitað „Tir Taingire",
fyrirheitna landið, land hinna heil-
ögu. Þetta hefur verið Florida. Áhöfn
skipsins hrópaði hátt af fögnuði yfir
ferðalokunum. Brendan vissi ekki um
meginlandið vestanvið. Hann hélt að
hann væri staddur á „Hy Brasil",
draumaeyju í Atlantshafi, sem margar
kynslóðir manna á Vestur-Irlandi
höfðu séð öðru hvoru, í heiðskíru
veðri, langt út til liafs, en enginn kom-
ið til. Þeir hófu að kanna hve stórt
landið væri en þótt þeir leituðu í 40
daga, fundu þeir ekki endimörk. Einn
daginn fundu þeir írska munka sem
þar höfðu búið lengi. Hve lengi
Brendan dvaldi í þessu gósenlandi er
ekki vitað, en um síðir greip heimþrá
mennina, Jteir söknuðu hins heilaga
Irlands. Og þar sem Brendan taldi
verk sitt fullkomnað, þá héldu þeir til
skips, settu segl, sigldu í austur og fóru
heirn, sömu leið og þeir voru komnir.
Brendan fór ekki í fleiri langsiglingar.
Hann fór ýmsar styttri sjóferðir, til
Bretlands og Younu, áður en hann
settist um kyrrt og stofnaði hið fræga
klaustur í Clonfert.
BEITA BEITA BEITA
LÍNUVEIDAR
HÖFUM FYRIRLIGGJANDI:
Beitusmokk kr. 62,00 pr. kg.
Beitusíld kr. 32,00 pr. kg.
Beitumakríll kr. 47,00 pr. kg.
Línuábót no 6x18" taumar ... ... kr. 4.490,00 pr. kg.
Línuábót no 7x16" taumar ... ... kr. 3.720,00 pr. kg.
^ón *zAsbjih tisson
GRÓFIN 1 • REYKJAVÍK • SÍMAR: (91)^11747 og 11748
14