Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.1992, Blaðsíða 30

Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.1992, Blaðsíða 30
V í K I N G U R UTAN ÚR HEIMI HILMAR SNORRASON NÝ SKIP Með glæsilegri skipum sem lileypt var af stokkunum á síðasta ári er án efa brasilíska ekju- og gámaskipið Intrépido í eigu Transroll Navega- cao. Eru skip þessarar tegundar gjarnan kölluð RO/LO (Roll on, Lift off) skip. Við hönnun skipsins var tekið mið af minni gerð ekjuskipa, sem smíðuð voru í Þýskalandi árið 1978, af Neugrabengerð og gáma- skipa af Contender-gerð. Hér var þó sameinað í eitt skip bæði öflugt ekju- skip og gámaskip en skipið ber 1341 TEUs. það var Caneco í Ríó de Janei- ro sem smíðaði skipið en systurskip þess, Independente, er væntanlegt dl afhendingar innan skamms. Það hafa verið farnar ýmsar ótroðnar slóðir við hönnun skipsins og má meðal annars nefna að bakkaþilfarið er yfirbyggt. Ekki verður þó sagt að allt Intrépido Lengd 173,40m Breidd 27,30m Djúprista 8,10m Burðargeta 17.400 tn. Gámageta 1341 TEU Aðalvél 10.360 Hö Hraði 15,0 hnútar sé fullkomið því fréttaritarar sem skrifað hafa um skipið telja siglinga- tækjakost þess vera ákaflega lélegan en hann er allur frá heintalandi skipsins. Er þessum systurskipum ætlað að vera í áætlanasiglingum milli Brasilíu og Evrópu. HAGSTÆTT VERÐ Málmsteypan HELLA hf. 12 TOMMU FYRIRLIGGJANDI ÁLAGER Kaplahrauni 5 - 220 Hafnarfirði - Sími 91-651022 - Telefax 91-651587 „GULA HÆTTAN“ Nú standa yftr viðræður milli kínverska mönnunar- og útgerðar- fyrirtækisins COSCO (China Ocean Shipping Company) og Grikkja um að Kínverjar útvegi þeim síðar- nefndu um 4000 sjómenn til starfa á skipum þeirra næstu tvö til þrjú ár. Nú þegar starfa um 3000 kínverskir sjómenn á heimsflotanum, að þeim kínverska undanskildum. Hjá Cosco starfa um 40.000 sjómenn og hefur stór hluti þeirra áhuga á störfum á erlendum skipum. Vissulega vekur Jrað áhyggjur farskipasjómanna ef Kínverjar ætla að flæða inn á mark- aðinn en Cosco hefur lýst því yfir að þeirra sjómönnum sé einungis leyft að vinna á erlendum skipum til þjálf- unar. Það er þá kannski ekki mikil þörf á að fara í kínverskunám alveg strax. 30

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.