Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.1992, Qupperneq 15
V í K I N G U R
BJORN S. STEFANSSON
SOKNARSTJORNI
STAD AFLAMARKS
Það er kennt að það sé til
tjóns að öllum sé heimil
nýting á gceðum sjávar.
Daninn Warming rökstuddi
þetta fyrstur manna
oþinberlega árið 1911. Hann
hélt þvífram að sá sem teldi
sér hag í sjósókn tæki ekki
tillit til þess að sókn hans
drægi úr afrakstri annarra.
Ráð hans var það, að sjósókn
yrði háð leyfi gegn gjaldi og
miðaðist leyfafjöldinn við að
verðmœti afla síðasta
fiskimannsins, sem leyfi
fengi, kostaði ekki meira en
sókn hans. Athyglisvert er, að
þama var um að ræða
sóknarmark en ekki aflamark
(sóknin mældist í
fiskimönnum).
Á þessum árum fylgdi rétturinn
dl að leggia álagildrur í Dan-
mörku jörðum. Arið 1931 reis Warm-
ing upp dl varnar því fyrirkomulagi og
gegn því að hverjum yrði frjálst að
leggja gildru, eins og útgerðarmenn
vildu. Hann sýndi fram á að með
einkarétti til álaveiða fengist meiri
arður en með því að gera álaveiðar að
almenningsrétti. Athugum, að enn
var um að ræða sóknarmark en ekki
aflamark.
Ábendingar Warmings lágu í þagn-
argildi meðal fræðimanna. Það var
fyrst upp úr miðri öldinni að farið var
að ræða þessi mál í alþjóðlegum vís-
indaritum, með sörnu rökum og sömu
niðurstöðu, en án tilvísunar dl hans.
Og áfrarn var um að ræða sóknarmark
en ekki aflamark.
Það vill að vísu svo til, að reiknuðu
töfluna eða teiknaða líkanið sem felur
í sér rök málsins, þar sem ákveðin sókn
skilar ákveðnum afla, má eins túlka
svo, að ákveðinn afli krefjist ákveð-
innar sóknar, og komi þá út á eitt hvort
sett er sóknarmark eða aflamark. En
það er bara á blaðinu sem það kemur
út á eitt. Ég vík að því síðar. Svo er
annað mál, sem reyndir menn hafa
bent á undanfarið, að fiskurinn (eða
rækjan) finnst auðveldar þegar hann
þéttir sig, þegar fleiri koma á miðin.
Þannig hafa menn hag af því að bátum
fjölgi, og það er hagur sem hver ein-
stakur tekur ekki tillit til.
Hvaða ráð hafa menn haft til að
hafa hóf á nýdngu náttúrunnar? Fyrst
eftir að það fór að þykja ráðlegt að
draga úr mengun, var helzt rætt um að
gera það með boðum og bönnum. Nú
þykjast menn ná betri árangri með því
að álykta um viðunandi heildarmeng-
un, t. a. m. á ákveðnu vatnasviði, og
gefa fyrirtækjum kost á að kaupa sér
rétt til að menga það að því marki.
Heimiluð heildarmengun miðast þá
við að gæði og afrakstursgeta vatna-
sviðsins haldist til frambúðar. Með því
móti er ekki litið á afraksturinn af
starfseminni sem álag á vatnasviðið,
heldur miðað beint við álagið, en vita-
skuld er afrakstur þess háður álagi.
Aðferðin á að leiða til þess að fyrir-
tæki, sem hefur mikinn arð af meng-
andi starfsemi, lieldur áfrarn, en fyrir-
tæki, sem hefur lítinn arð af mengun
sinni, hættir slíkri starfsemi. Þar er því
einnig um að ræða sóknarmark en
ekki aflamark.
Má beita slíkum ráðum til að hafa
hóf á nýtingu sjávarins? Hliðstæðan er
greinilega ekki fullkomin. Það er ekki
mengun af fiskveiðum sem hefur þótt
til vandræða, heldur óhófleg veiði.
Hugsunin á bak við þá stjórn fiskveiða,
sem hér hefur verið viðhöfð, er að
ákveða heildarafla einstakra fisk-
stofna, en ekki heildarálag á fiskislóð-
irnar.
Ýmsir hafa mælt með sóknarmarki,
en lent í vandræðum með að benda á
almennan mælikvarða á sókn við
breytilega útgerðarhætti.
Athugum hvort almennur tilkostn-
aður við fiskveiðar getur verið mæli-
kvarði á álag á fiskislóðirnar í heild.
Skattframtöl eru vísbending um þenn-
an tilkostnað. Mætti styðjast við þau til
að ákveða hóflegt álag á fiskislóðir
landsmanna? Hugsum okkur að
hyggilegt þætti að draga úr sókn með
því að minnka kostnað sjávarútvegsins
um 10% miðað við árlegan meðal-
kostnað síðastliðin þrjú ár. Það mætti
gera með því að takmarka heimildir
útgerðarfyrirtækja til að draga frá
tekjum sínum við meðalrekstrarkostn-
að áranna að frádregnum 10% (eða
annarri tölu sem líklegt þætti að ætti
við). Þarna er þá ekki með vinnufram-
lag né fjármagnskostnaður.
Þegar fiskveiðar eru stundaðar með
annarri starfsemi gætu komið upp
álitamál um hvað teljast skuli kostnað-
ur við þær. Það kynni að þykja ófram-
kvæmanlegt annað en halda sig við
ákveðna rekstrarliði sem er auðvelt að
hafa eftirlit með. Annað eftirlit virðist
verða auðveldara en nú, svo sem það
að aflatakmarkanir yrðu afnumdar og
þar með hyrfi sú ástæða til að skjóta
afia undan framtali eða kasta honum
fyrir borð.
Til að fá sveigjanleika, svo að ein-
stök fyrirtæki geti ýmist aukið við sig
eða dregið saman um meira en 10%,
mætti Jieimildin til frádráttar vera
framseljanleg, en eðli málsins sam-
kvæmt yrði það aðeins dl árs í senn.
Ætli almenningur sætd sig ekki betur
við slíkt framsal en við núverandi
framsal veiðiheimilda? Þegar áraði
þannig að heppilegt þætti að herða
heildarsókn, yrði aftur leyft að draga
rekstrarkostnað að fullu frá tekjum til
skatts.
Margt yrði skoðað öðru vísi við þetta
fyrirkomulag. Þarna er ekki gerður
munur á fisktegundum, svo sem hvar
þær standa í lífkeðjunni eða lífnetinu.
Sóknin beindist á hverjum tíma að
fisktegundum í samræmi við arðsvon.
Það yrði hlutverk fiskifræðinga að
meta árlegan heildarafrakstur sjávar-
ins og rökstyðja hvort betur færi að
herða sóknina eða draga úr henni.
Megingildi þessa fyrirkomulags yrði
að fiskifræðingar fengju það hlutverk
að gera grein fyrir samhengi fæðu og
þrifa einstakra fiskstofna og leggja á
ráðin með tilliti til þess. +
15