Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.1992, Qupperneq 24
„Við röltum niður á bryggju og
sáum þar gamlan mann sitjancli á
polla. Viðfórum að rabba við liann
og þá kom í Ijós að hann var hátt á
nírœðisaldri, enfurðu skýr og hafði
verið á Islandi einhverntíma fyrr á
lífsleiðinni. Þegar við hœttum að
spjalla saman, reis hann á fœtur,
studdist við stafinn sinn að
mótorhjóli, sem stóð þar skammt
frá, settist á bak og keyrði í burtu.
Ég varð gáttaður á þessu og
hafði orð á því við nœrstaddan
mann að það gceti verið hættulegt
að svo gamall maður vœri á
mótorhjóli.
- Já, hann, sagði maðurinn,
-hann er orðinn svo ónýtur í
löppunum að hann getur ekkert
gengið. “
■ Gestur Gunnarsson er að segja
sögur úr fríinu sínu í Færeyjum
síðast liðið sumar, en hans nafn kom
upp þegar dregið var um getrauna-
vinning Víkingsins og Norrænu ferða-
skrifstofunnar í fyrra. Hann fór með
Sigrúnu konu sinni og Eyrúnu, átta
ára gamalli dóttur þeirra, með M/F
Norrænu til Færeyja. Þau höfðu bílinn
sinn nteð, dvöldu í tæpar tvær vikur í
Færeyjum, gistu oftast í tjaldi, óku um
og skoðuðu eyjarnar, ræddu við
heimafólk, hittu jafnvel gamla kunn-
ingja og fóru að því loknu sömu leið
heirn.
„Það var búið að vara okkur við að
fara í frí til Færeyja. Fólk sagði að þar
væri alltaf rok og rigning og gersam-
lega vonlaust að búa þar í tjaldi. En
þetta var ástæðuiaust. Það er að vísu
dálítið votviðrasamt í Færeyjum, en
það er líka oftast einhversstaðar í eyj-
unum sólskin. Maður keyt ir bara und-
an vindi og það endar með því að mað-
FERD TIL FÆREYJA
„HANN GETUR
EKKERT
GENGIГ
MÁBJÓDA
ÞÉR
í ÓDÝRT
FRÍ?
Við hjá Víkingnum ætlum í vor
að draga um tvær ferðir til útlanda.
Hver sá áskrifandi sem er
skuldlaus við blaðið þegar dregið
verður, er sjálfkrafa þátttakandi í
útdrættinum.
í boði eru ferð fyrir tvo með M/F
Norröna, á vegum Norrænu
ferðaskrifstofunnar, frá Seyðisfirði í
júní til Þórshafnar í Færeyjum og
aftur til baka, fyrir tvo með bílinn
sinn með sér. Sá sem hlýtur þessa
ferð ræður því hvenær hann vill
koma til baka.
Hin ferðin er á vegum
Samvinnuferða-Landsýnar og er
hálfsmánaðar ferð fyrir einn til
einhvers sumardvalarstaðar sem
ferðaskrifstofan heldur uppi
leiguflugi til. Innifalið í vinningnum
erfarseðill, hótel og morgunverður
meðan á ferðinni stendur.
Þeim sem ekki eru áskrifendur
nú þegar en vilja verða það er
bent á hversu einfalt er að láta þá
ósk rætast. Allur galdurinn er að
hringja í síma 91-624067, eða
senda okkur línu í pósti eða á fax
91-629934.
24