Náttúrufræðingurinn - 1932, Síða 20
NÁTTÚRUFR.
14
Ýmsir munir úr íslenzkum leir.
verkum frá náminu. l>óttu sum þessi sýnishorn betri til leiriðn-
aðar, en leirteg-undir þær, sem völ var á í Þýzkalandi. Komst
verksmiðjustjórinn svo að orði, að með slíku efni mætti skapa sér
mikla yfirburði í þeirri iðn.
Þegar Guðmundur hafði iokið náminu á listaskólanum, hafði
hann tilbúnar margar leirmyndir, er hann hafði gjört úr er-
lendum leir. Kom hann þeim að á sýningu, og seldust þær fyrir
1800 mörk. Notaði hann það fé sem farareyrir til þess að fara
námsferð til Italíu, Grikklands og Tyrklands. í þessari för fékk
hann gott tækifæri til að kynnast leiriðnaði í þessum löndum, og
kynntist honum þar líka í frumlegustu og einföldustu mynd, þar
sem hann er rekinn með einföldum útbúnaði og ódýrum tækjum,
og þó með góðum hagnaði. Þá þóttist hann hafa kynnst þeim tækj-
um og útbúnaði, er væri við okkar hæfi, meðan verið væri að
byrja og reyna sig áfram í þessari iðnaðargrein. Festist þá sá á-
setningur hans, að reyna það sem unt væri til að nema leiriðnað-
inum land hér heima.
1926—27 dvaldi Guðm. hér heima og leitaði hófanna um fé
til íramkvæmda. Alþingi sá sér þá ekki fært að liðsinna honum í
þessu máli. Og þeir voru fáir hér, sem vildu ljá slíkri nýung lið-
sinni, aðeins örfáir greiddu lítilsháttar fyrir því að hann gæti
frekari tilraunir gert. Safnaði þá Guðm. 70—80 leirsýnishorn-
um. Dvaldi hann 1927—28 erlendis og gerði fullnaðar tilraun á