Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1932, Síða 30

Náttúrufræðingurinn - 1932, Síða 30
24 NÁTTÚRUFR Nýftíndnar frtimmannaleífar. Sinanthropus Pekinensis. Róm var ekki byggð á einum degi. — Mannkynið á langa þróunarsögu að baki. En mestur hluti þeirrar sögu er torrakinn. H'eimildir eru fáar og vandráðnar. Þar eru ekki gulnuð bókfell eða gamlar rúnaristur. Þær eru steinrunnin bein og steinvopn, er fundizt hafa í jarðlögum. Margt má þó ráða af heimildum þessum. Beinin sýna, hvernig þessir forfeður okkar munu hafa litið út, af steinverkfærum má ráða nokkuð um menningu þeirra og hagleik, og af jarðlög- unum, er beinin finnast í, má ráða aldurinn. Með því að ráða af líkum og geta í eyðurnar, geta menn því nú rakið þróunarsögu mannkynsins í stórum dráttum allt aftur til hinna „loðnu og heimsku apa“. Margt er þó myrkt og óljóst enn, og þykir því ætíð tíðindum sæta, er nýjar leifar frummanna finnast. Hérað nefnist Chou-Kou-Tien, er liggur austur í Kína, um 60 km. suðvestur af borginni Peking. Af héraði þessu hafa til skamms tíma fáar sögur farið. En nú á síðari árum hefir nafn þess hvað eftir annað staðið stórum stöfum í stórblöðum og tímaritum flestra menningarlanda. Frægð þessi er því að þakka, að á þessum árum hafa fundizt þarna frummanna leif- ar, er varpa nýju Ijósi á þróunarsögu mannkynsins. All-lengi hafði fræðimenn órað fyrir því, að merkar leif- ar kynnu að finnast í héraði þessu. í lyfjabúðum í Peking er mjög mikið af gömlum, steinrunnum beinum. Iíafa Kínverjar mikla trú á þeim til lækninga. Um langan aldur hafa beinin verið sótt að mestu til Chou-Kou-Tien. Um síðustu aldamót fann þýzkur vísindamaður mannstönn meðal slíkra beina. En það er ekki fyr en sumarið 1926, að rannsóknir voru hafnar fyrir alvöru í Chou-Kou-Tien. Leið svo mest-allt sum- arið, en daginn áður en hætta átti rannsóknum um haustið, fundust tvær mannstennur. Var því grafið næsta sumar af miklu kappi þrátt fyrir borgarastyrjöld og aðra óáran, er geis- aði í Kína. Fannst enn ein tönn. Voru nú tennurnar fengnar til rannsóknar kanadiskum prófessor, Davidson Black að nafni, sem var búsettur í Peking. Hann rannsakaði tennurnar mjög vand- lega, og kvað þær tilheyra áður óþekktri tegund frummanna, sem

x

Náttúrufræðingurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.