Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1981, Blaðsíða 28

Náttúrufræðingurinn - 1981, Blaðsíða 28
áburöarlausu reitanna. Hlutur mosa í gróðurþekju óx sumsstaðar við friðun, en minnkaði annarsstaðar án nokkurrar sjáanlegrar reglu. I Melgerði margfald- aðist hlutur þeirra, en var reyndar lítill fyrir. Hlutur mosa minnkaði verulega strax á fyrsta ári áburðargjafar og áfram síðan, en þeir hurfu þó hvergi, jafnvel ekki við árlega áburðargjöf. Þeir héldu þó ekki nema broti upphaflegrar þekju. I eftirverkunarreitunum breiddust mosar smám saman út, en fjarri fór, að þeir næðu upphaflegri útbreiðslu á til- raunatímanum. Hlutur mosa í gróður- þekju áburðar- og eftirverkunarreit- anna var í nánu samhengi viö hlutdeild grasa, þannig að grösin breiddust aðal- lega út á kostnað mosa og öfugt. Fléttur Fléttur (Liclienes) komu fyrir á öllum tilraunastöðunum nema tveimur. Hlutur þeirra var hvarvetna innan við 2% af gróðurþekju nema 12% á Jökul- dalsheiði. Fléttur drógu mjög saman seglin á öðru áburðarári og hurfu alveg við árlega áburðargjöf. Þær breiddust ekki út í eftirverkunarreitunum. HELSTU NIÐURSTÖÐUR Reynt hefur verið að taka helstu niðurstöður saman í einfalda töflu. I il einföldunar var tegundum eða tegundahópum gefin einkunn eftir við- brögðum við áburðargjöf. Þar voru breytingar metnar bæði sem mismunur og hlutföll. Niðurstöður eru sýndar í Töflu II. Eitt tákn, + eða —, gefur til kynna lítinn mun og sjaldnast mark- tækan. Tvö merki, + + eða-----, eiga að sýna í stórum dráttum tvöföldun eða helmingun lítillar hlutfallsþekju og verulegar breytingar á stórum hlut í gróðurþekju. Þrjú merki, + + + eða ------, þýða þá margföldun eða hvarf lítils hluts í þekju og tvöföldun eða helmingun mikillar hlutfallsþekju. Fremsti dálkur töflunnar sýnir breyt- ingar á hlut einstakra tegunda í þekju áburðarlausu reitanna. Annar dálk- urinn er samanburöur áburðarreitanna og áburðarlausu reitanna fyrstu tvö árin. Þriðji dálkurinn sýnir mun áburðargjafar annað hvert ár og áburöarlausra reita frá þriðja ári til loka tilraunanna. Fjórði dálkurinn er samanburður eftirverkunarreitanna og þeirra reita, sem fengu áburð annað hvert ár. 1 framhaldi af þessu var reynt að raða tegundum í fáeina flokka eftir við- brögöum þeirra við áburðargjöf og frið- un. Lýsing þeirra gæti verið á þessa leið: Flokkur 1: Mikil útbreiðsluhæfni. Ná hámarksútbreiðslu á fyrsta sumri áburðargjafar, en þoka, er gras- svörður þéttist. Flokkur 2: Breiðast út við friðun. Halda hlut sínum við áburð annað hvert ár. Flokkur 3: Lítill hlutur í gróðurþekju, en breytist ekki að ráði við áburðar- gjöf- Flokkur 4: Hlutur í gróöurþekju minnkar við áburðargjöf. Hverfa þó ekki alveg. Flokkur 5: Hverfa við áburöargjöf. Breiðast sáralítiö út i eftirverkunar- reitunum. í Töflu III er tegundum raðað í þessa fimm flokka. Sjá má, að meira en helmingur teg- unda fræplantna er í tveimur síðustu dálkunum. Þangað flokkast þær teg- undir, sem fara mjög halloka í sam- keppni við grösin. Því hlýtur áburðar- 106
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Náttúrufræðingurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.