Náttúrufræðingurinn - 1959, Qupperneq 13
N Á TT Ú R U F R Æ ÐINGURIN N
123
8. mynd. Kctubjörg að sUnnan. (Ketubjörg from the south. 1, ancl 3, lavas; 5,
palagonite breccia; 7, volcanic neck; all of RM. 2, and 4, sediments; 6, eroded
surface ).
og upp yíir móbergið. Verður að lel ja að hér séu gosstöðvar fyrir
móbergslagið (5), sem nær langt til suðurs með hamrabrúninni og
liefur runnið sem hraun. Helgi Pjeturss merkir bæði setlögin (2)
og (4) sem jökulruðning, en ég gat aðeins athugað þau ofan af bjarg-
brún og get ekki dæmt um réttmæti þess.
Við Kleif kemur loks hinn forni basaltpallur fram undan ungu lög-
nnum, alveg við sjávarmál. Fylgir svo fornbasaltið strandræmunni
inn að Selvík, með lágri brún yngra hrauns að baki, en fyrst í Selvík
og Selárgili fæst góður þverskurður af neðri mótum ungu laganna (9.
mynd). Iiraunlögum fornbasaltsins (1) hallar hér 5—8° suður. Hér
hefur verið um 40 metra
há brekka í basaltgrunnin-
um og að henni lögðust lá-
rétt lög úr fínum brúnum
sandi eða móhellu, senni-
lega foksandur (2). Lögin
eru furðumjúk, en mynda
þó sillur og bríkur. Þar á
liggur þunnt lag af gróf-
um árframburði úr lítt
unnu gömlu basalti (3),
en efst í honum er þunnt svart lag, sem mun vera af lífræn-
um uppruna. Hér leggst loks á öfugt segulmagnað ungt fínstuðlað
hraun (4). Sunnan við Selá er strandflöturinn í fornbasaltinu skýr
og um 11/,-2 km breiður og á hann vantar ungu hraunin. Þau koma
fyrst hærra, ofan við bæina Hól og Foss. Basaltgrunnurinn er þar
liærri en á strandfletinum framan við; suðvestur frá Fossi er grunn-
urinn í 170—180 m hæð og aðeins 40—50 m jiykk hetta úr ungu
9. mynd. Selárgil. (Section at Selvík. 1, old
dipping basalts; 2, broxvn loess-like sand-
stone; 3, river gravel and dark organic (?)
layer; 4, lava (RM).)