Náttúrufræðingurinn

Årgang

Náttúrufræðingurinn - 1936, Side 16

Náttúrufræðingurinn - 1936, Side 16
124 NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN miiiiiimiiiimiiiimimiimiiiimmiiiiimiiiiiimiiimiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiimiiiiiiiMiiiiiiutmiiiiiiiiiiiiiiitiiiiiiiimiiiii lítið. Hér fæst hann ungur og fullorðinn (smár og stór) á sömu slóðum og lirfan er, eins og vænta má, svifdýr. Höf. hefir séð hann með egg undir hala og í hamskiptum í júlí. Eins og kunnugt er, er leturhumarinn ágætis matur, miklu fín- gerðari en vanalegur humar, en erfitt er að geyma hann lifandi og koma honum þannig á markað.1) Þó er hann nokkuð veiddur í norðanverðum Norðursjó og við Noreg sunnanverðan. Ekkert skal um það sagt, hvort það myndi borga sig að veiða leturhum- arinn hér við land, sérstaklega; úr því yrði reynslan að skera. En ef mætti sameina humarveiðarnar rækjuveiðum, sem stundaðar væru við SV-land, og humarinn soðinn niður, eða sendur út kæld- ur, eru meiri líkindi til þess að þær gætu borgað sig. Þorskur etur hann mikið þar sem hann er að fá. 2. Humrungur (Galathea nexa Embl.) er miklu minni en leturhumar, (1 allt að 20 mm) en all-svipaður honum í vexti (9. md.), en þó nokkuð breið- vaxnari, méð þverhrukkóttan skjöld og stórar tengur á fremstu ganglimunum, en engar á hinum; 4. ganglima- parið er mjög vanþroskað. Liturinn rauður eða rauð- brúnn, með ýmsu flúri. — Humrungurinn á heima með öllum ströndum Evrópu frá Karahafi til Miðjarðarhafs á 5—150 m dýpi, tíðast á grjót- og sandbotni. Hér við land er hann mjög tíður við S- og V-ströndina, frá Vest- manneyjum til Vestfjarða, á öllu dýpi, frá 40—300 m, og mikið etinn af þyrsklingi og ýsu (hefi eitt sinn fundið hann í 11 ýsum af 23 úr Grindavíkursjó). 9. md. Útlend humrungs-tegund. (Úr Danm. Fauna). 1) Hinn alkunni N-Atlanzhafs humar (Homarus vulgaris, á Norðurlanda- málunum og Þ Hummer, á E Lobster) er grunnsævisdýr, sem lifir á grýttum, þaragrónum botni á 8—30 m dýpi, og er svo hitafrekur, að hann lifir ekki hér við land, og varla við Færeyjar. Þar hefir hann ekki viljað þrífast, þótt reynt hafi verið að setja ungviði þar í firðina.

x

Náttúrufræðingurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.