Náttúrufræðingurinn

Ukioqatigiit

Náttúrufræðingurinn - 1936, Qupperneq 22

Náttúrufræðingurinn - 1936, Qupperneq 22
130 NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN iiiiiiiiiiiimmiiiiiiiiiiimimiiiiiimiiiimiiiiiiiimiiimmiifiiiiimimimiiiiiiiiiimuiiiiiimiiiiiimiimiiminiiiiiiimiimiimiM' verðu af því, aS þaS tekur bústaS í tómum kuSung jafnskjótt og þaS hættir sviflífi sínu og lagar sig eftir hinum þrönga og snúna bústaS sínum, sem þaS flytur meS sér. YerSur það að skipta um hann og fá sér stærri jafnóðum og það vex og endar (hér í sjó) með stærstu kuðungunum (beitukóng og hafkóng). Þegar ástæða er til dregur dýrið sig inn í kuðunginn og lokar fyrir hann með töngunum- Af þessu nefnast þessi dýr kuSungakrabbar, en ekki af því, að þeir séu af kuðungi (snigli) komnir- Á kuðungnum, sem þeir búa í, situr oft sæfífill, pólýpar o. fl. 1. Snoðni kuðungakrabbi (Eup. Bernhardus L) hef- ir engan kjöl á töngunum, og er lítið sem ekkert hærður á útlim- um (16. md., 1 og 4). Liturinn er rauðgulur með dökkum rák- um. Hann er algengur á grunnsævi (15—30 m) í N-Atlantshafi og Miðjarðarhafi og hér við land er hann algengur a. m. k. í hlýja sjónum, frá fjöruborði niður á 200 m. Hann býr í ýmsum tegund- um kuðunga eftir stærð, og að síðustu í beitukóng og hafkóng, og finnst oft í mögum ýmissa fiska. Höfundurinn hefir séð hann með egg á hala 17. maí til 30. júní. 2. Loðni kuðungakrabbi (Eup. pubescens Kröyer) er svipaður hinum að stærð og útliti, en hefir greinilegan kjöl eftir endilangri vinstri töng ut- anverðri og útlimirnir eru sett- ir stinnum hárum eða broddum (tengurnar, 1. md. 3 og 5). Lit- urinn er dökkrauður með ljós- um eða dökkum dílum. Hann er tíður í nyrztu höfum jarðarinn- ar og á öllu dýpi frá fjöruborði' niður á 260 m eða dýpra. Hér við land er hann mjög tíður á. líku dýpi og hinn, nema í hlýj- ari sjónum, þar sem færra virð- ist vera um hann. Eins og hinn býr hann í kuðungum á allri stærð, og finnst oft í fiskamög- um. 16. md. Kuðungakrabbi og tengur af íslenzku tegundunum. (Úr Danmarks Fauna). Af því litla, sem sagt hefir verið hér að framan um tífættu krabbadýrin í íslenzkum sjó, má sennilega ráða, að þau muni í

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.