Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1936, Blaðsíða 44

Náttúrufræðingurinn - 1936, Blaðsíða 44
152 NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN ....................... sá, sem svartbakurinn hefir veitt þannig, er nefndur „veiði", og má vera, að hið annað nafn hans, veiðibjalla, sé af því komið. Svartbakurinn gerir töluvert mikið að því að veiða þannig hrogn- kelsi að vorinu, innan um sker og hólma, en fengsælastur er hann á miklum leirum, þar sem tjarnir myndast á leirunum, þegar sjórinn fellur út, því að hrognkelsin daga oft uppi í þess konar tjörnum. Áður fyrr — að minnsta kosti — tíðkaðist að ganga á slíkar leirur, af landeiganda, og taka veiðina af fuglinum, og veiddist oft töluvert á þennan hátt. Um silungsveiði svartbaksins er mér ókunnugt, en heyrt hefi eg að það komi fyrir, að hann ráðist á unglömb og drepi þau. Og alkunna er, að svartbakurinn er skaðræðisgripur í öllum ungum, sem hann getur náð í, sérstaklega þó í æðarungum, sem hann tínir upp vanalega flestalla, sem hann sér, og gleypir með öllu saman, og stendur því mest í vegi fyrir því, að æðarfugli fjölgi að nokkru ráði. Einnig kemur það fyrir, aðallega að vetri til, þeg- ar ísrek er mikið og lygn sjór, að hann syndir með mestu hægð og miklum sakleysissvip og reynir að komast sem næst þar, sem æðarfugl er. Þyki honum að hann sé kominn nægilega nálægt, þá bregður hann við og tekur fyrir hálsinn á einhverjum æðarfugl- inum og hengir hann, dregur hann svo til næsta lands eða ísjaka og étur hann þar. Yfirleitt er svartbakurinn mesti veiði- og rán- fugl. Þ. J. Jóhannsson. Náttúrufræðingurinn þakkar höfundi þessarar greinar og próf. Guðmundi Thoroddsen fyrir þær mjög fróðlegu upplýsingar um lifnaðarháttu svartbaksins, sem þeir hafa látið ritinu í té. Á. F.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Náttúrufræðingurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.