Náttúrufræðingurinn

Årgang

Náttúrufræðingurinn - 1936, Side 51

Náttúrufræðingurinn - 1936, Side 51
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN 159 fmiiiiiiimmimimimiimimmiiiMiiiiiiimiiiiiiiiiiiimmmiiiiimiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiimiiiiiiiimiiimiimiiiiii Ritfre^nir. Geir Gígja: Jurtagróður, fegurð hans og fjölbreytni, Reykjavík, 1936. Þetta er mjög snotur bæklingur, 3 arkir (48 bls.) í „Crown“- broti. Höfundurinn hefir gert sér far um að gefa stutt og um leið skemmtilegt yfirlit yfir gerð og lífsháttu plantnanna, og þetta hefir honum, að mínum dómi, tekizt vel. Alls staðar skín í gegn ást höfundar á náttúrunni og fegurð hennar, bezta seglfestan, sem hægt er að hafa fyrir hvern þann, sem hyggst að glæða þekkingu og aðdáun annara á fegurð móður náttúru. Sá eini galli finnst mér á riti þessu, að í það vantar greiningarlykla, yfir a. m. k. al- gengustu íslenzkar plöntur, en þess vegna verður að vísa öllum til annara, dýrari bók, og þess vegna nær ritið ekki þeim tilgangi, sem það hefði einnig þurft að ná, að kenna mönnum að þekkja plönturnar, einkum efnalítilli alþýðu og skólafólki. Úr þessu bæta þó myndirnar nokkuð, en þær eru margar, 65 að tölu, og auka þær mjög við gildi kversins. Vonandi verður bækling þessum tekið vel, eins og hann á skilið, og mega skólarnir vera höfundi þakklátir fyrir hann. Höfundur- inn hefir annars aðallega lagt stund á skordýrarannsóknir, og hef- ir svo að segja gefið þeim hverja frístund sína árum saman, með þeim árangri, að hann mun nú vera með færustu mönnum hér á landi í þeirri grein. Á. F. Keld Milthers: Jökullöbet paa Island 1934. Nat. Verd. Aug. 1936. Höfundurinn kom hingað til landsins í för með Dr. Niels Niel- sen, þegar Vatnajökull „tók til starfa“ árið 1934, sérstaklega til þess að rannsaka hina dýpri hluta jökulsins, sem komu í ljós eftir jökulhlaupið. — Ritgjörðin er lýsing á jökulhlaupinu og gosinu, eftir beztu heimildum, um leið og höfundurinn gefur yfirlit yfir helztu niðurstöðuna af sínum rannsóknum. Greinin er skemmti- lega rituð, skrýdd átta góðum myndum, og í henni andar hlýju til þeirra íslendinga, sem höfundurinn komst í kynni við hér. Á. F.

x

Náttúrufræðingurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.