Náttúrufræðingurinn

Årgang

Náttúrufræðingurinn - 1942, Side 10

Náttúrufræðingurinn - 1942, Side 10
108 NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN livíileit rálc er yfir auganu. Flugfjaðrir og stélfjaðrir eru dökk- brúnar með ljósari fjaðrajöðrum. Tvœr yztu stélfjaðrirnar sin hvorum megin eru hvítar með breiðum dökkbrúnum jöðrum á innfönum, tvær þær næstu dökkbrúnar með breiðum hvítum jöðr- imi á útfönum. Nef dökkbrúnt, neðri skoltur þó ljósari. Fætur dökkbrúnir, nærri svartir um liðamótin. Lithimna brún. Ungir fuglar eru dökkbrúnni að ofan með breiðum ryðlituðum fjaðra- jöðrum og hvítleitum fjaðraoddum. Ivynin eru eins, kvenfuglinn aðeins dálitið minni. Heimkynni söngtævirkjans (tegundarinnar) eru um alla Evr- ópu og Asiu frá Atlantshafi austur að Kyrrahafi og Jap- an og norðan frá heim- skautsbaug suður að Ind- landshafi og Ceylon, enn- fremur ná lieimkyni hans yfir Norður-Afríku norðan við Saliara. Um 28 undirteg- undir eru kunnar. Fugl sá, er liér hefur náðst, telst lil unditegundar þeirrar, sem er útbreidd um alla Evrópu að undanskildum Pyrenea- skaga, eyjum Miðjarðar- hafsins, Suður-ítalíu og Suðaustur-Evrópu (allt frá sunnanverðu Ungverja- landi). í Noregi ná heim- kynni þessarar undirtegundar norður að 71°, í Sviþjóð norður að 68 V20 og i Rússlandi norður að 61° norðlægrar breiddar. Á Bretlandseyjum er hún mjög algengur varpfugl, en í Færeyjum sjaldgæfur varpfugl i syðri eyjunum. í norðlægari heimkynnum sínum er þessi undirtegund farfugl, sem dvelst á vetrum í Mið- jarðarhafslöndunum. Sönglævirkinn lieldur sig i alls konar graslendi, bæði ræktuðu og óræktuðu, þurru og hlaulu. Hann er mjög algengur á korn- ökrum og ræktuðu landi yfirleitt. Er hann einn af allra algeug- ustu einkennisfuglum slíks lands og rómaður mjög sem söng- fugl, enda er hans víða minnzt í skáldskap og þjóðsögnum. Varp- slað velur hann sér á bersvæði i grasi eða á kornökrum. Hreiðrið er losaralega samanfléttað úr þurrum stráum, rótum og blaðhlut- Sönglœvirki.

x

Náttúrufræðingurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.