Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1942, Síða 12

Náttúrufræðingurinn - 1942, Síða 12
170 NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN og nýárs. Á Húsavík dvöldust 2 silkitoppur í nóv.—des. (Júlíus Havsteen). Á Ulfsbæ i Bárðardal sást silkitoppa skömmu fyrir ára- mótin (Kári Tryggvason). Að Berjanesi i Landeyjum varð vart við stóran hóp af silkitoppum um miðjan okt., og dvöldust sumar þeirra þar fram yfir miðjan des. (Guðjón Einarsson). Þann 3. nóv. fannst sillcitoppa dauð í fjárhúsi að Ölvisholtshjáleigu í Holtalir., Bang., og var hún send Nátlúrugripasafninu af Baldri Árnasyni. í Yestmannaeyjum náðist loks silkitoppa veturinn 1941—1942, en ég hefi ekki fengið upplýsingar um, livenær það var (Friðrik Jesson). Að ofanskráðum upplýsingum má ráða, að silkitoppan hefir „flætt“ yfir landið veturinn 1941—1942, ef svo má að orði komast, því að auðvitað hefir hún verið miklu viðar um landið en þau fá- tæklegu gögn gefa til kvnna, sem mér hefir tekizt að afla. Sillci- toppan á heima i hinum viðáttumiklu skógum í norðanverðri Skandínavíu og Bússlandi. Á haustin og veturna lifir hún mest á herjum, einkum reyniherjum. Ilún er ein af hinum svonefndu flökkufuglum, en það eru fuglar, sem færa sig til allt eftir því, hvar fæðu er að fá á liverjum tíma. í slæmum berjaárum tekur silkitoppan sig stundum upp og leitar i stórhóþum suður og vestur um alla Evrópu. Þannig var það t. d. veturinn 1931—1932. Sum- arið 1931 liafði verið óvenju slæmt berjasumar í hinum norrænu heimkynnum hennar, og um veturinn leitaði hún í stórhópum suð- ur og vestur um Evrópu, og þann vetur bar einnig talsvert á sillci- toppum hér á landi. Það má þvi telja víst, að rýr berjavöxtur í heimkynnum silkitoþpunnar sumarið 1941 iiafi valdið ferðum hennar síðastt. vetur. Má telja víst, að hún hafi þá einnig leitað i stórhópum suður og vestur um meginland Evrópu, en af skiljan- legum ástæðum er engar upplýsingar hægt að fá um það sem stendur. 11. Gransöngvari — Phylloscopus collybita Yieillot. Þann 31. okt. 1941 fannst dauður gransöngvari við þvottasnúru- staur í kartöflugarði hak við liús Kristjáns Geirmundssonar á Ak- ureyri. Samkv. upplýsingum frá Kristjáni var fuglinn fremur feit- ur. Maginn var tómur. Á höfuðkúpunni og hringunni voru hlóð- hlaupnir hlettir. Ég hefi fengið þennan fugl til atliugunar og hefi gengið úr skugga um, að um þessa tegund er að ræða. Hins vegar er ekki hægt að skera úr því með vissu að svo komnu máli, til hvaða undirtegundar hann telst. Fuglinn var karlfugl, og stærð lians i

x

Náttúrufræðingurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.