Náttúrufræðingurinn

Årgang

Náttúrufræðingurinn - 1942, Side 13

Náttúrufræðingurinn - 1942, Side 13
NÁTT l'l! UFR.liÐINGURI N N 171 mm. var sem hér segir: heildarl. 124.0, vœngur 64.5, stél 51.8, nef 11.4, rist 20.2, miðtá + kló 13.7, kló 4.2. Þvngd: 9.5 g. 12. Hettusöngvari — Sylvia atricapilla atricapilla (L.). Þann 4. apríl 1940 fannst dauður hettusöngvari skammt frá bænum á Ivvískerjum í Öræfum, og 18. sama mánaðar fannst þar aftur dauður liettusöngvari. Báða þessa fugla sendi Sigurður Björnsson á Kvískerjum Náttúrugripasafninu. Fyrri fuglinn var annaðhvort fullorðinn lcvenfugl eða ungur fugl, en síðari fuglinn var fullorðinn karlfugl. Þann 16. nóv. 1940 sást enn hettusöngvari á Kvískerjum. Það mun liafa verið fullorðinn kvenfugl eða ung- fugl (Sig. Björnsson). Þann 26. sept. 1941 sást loks hettusöngvari (fullorðinn kvenfugl eða ungfugl) i garðinum við bæinn á Ivvi- skerjum, og 22. nóv. fannst þar dauður hettusöngvari (fullorðinn karlfugl) sjórekinn (Hálfdán Björnsson). Á Akureyri skaut Kristján Geirmundsson hettusöngvara (full- orðinn karlfugl) þann 12. nóv. 1941 í garðinum við hús sitt. Það var auð jörð, og var bann að leita sér ætis innan um gróður í garð- inum. I maga bans voru reyniberjahýði og arfafræ. Þann 25. sama mánaðar skaut Kristján aftur hettusöngvara (kvenfugl) í sama garði. Áður þann sama dag bafði Kristján séð liettusöngvara nokkru utar i bænum, en líkindi eru til þess, að það bafi verið sami fuglinn. Þann 19. okt. 1940 flaug hettusöngvari inn í barnaskólann á Húsavík. Fuglinn var handsamaður þar og sendur Kristjáni Geir- mundssyni lil uppsetningar. Þelta var ungur kvenfugl. 13. Gráþröstur — Turdus pilaris L. Árið 1940 varð allvíða vart við gráþresti liér á landi. Dagana 21.—22. febrúar liéldu 2 gráþrestir sig í garðinum í Þingbolts- stræli 14 í Bcykjavík. Annar þeirra flaug á rúðu og bæklaðist á væng, náðist og var settur i búr, en drapst skömmu síðar (F. Guðm.) Þann 28. febrúar sást gráþröstur i garði við Tjarnarg. í Rvík (F. Guðm.). Samkv. uppl. fráKristj. Geinnundss. sáust 7 grá- þrestir i gróðrarstöðinni á Akureyri þann 24. febrúar, og þann 22. apríl sásl gráþröstur á túni í nánd við gróðrarstöðina. Hann var þar í liópi skógarþrasta, en þeir voru þá að koma. Loks sóst grá- þröstur í gróðrarstöðinni á Akureyri 3. des., og 5. des. sáust þeir þar 2. Á Hólum i Hornafirði voru gráþrestir í smáhópum frá því 28. jan. og þangað til um miðjan apríl (Sigurður Björnsson). Að

x

Náttúrufræðingurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.