Náttúrufræðingurinn - 1942, Síða 14
172
NATT UK UFR ÆÐINGU RIN N
Berjanesi í Landeyjum liélt gráþröstur sig alllengi um haustið og
fyrri hluta vetrar (Guðjón Einarsson). Þann 28. jan. kom mikið
af gráþröstum lil Vestmannaeyja, og dreifðust þeir um eyjuna.
Það, sem eftir var vetrar, sáust gráþrestir þar öðru iiverju, allt til
26. apríl, á einum stað 8 og á öðrum 17.
Árið 1941 varð einnig nokkuð vart við gráþresti, en þó minna
en næstu ár á undan. Á Alcureyri sáust 2 gráþrestir í gróðrarstöð-
inni þann 31. des. (Kristján Geirmundsson). Á Grímsstöðum við
Mývatn sást gráþröstur i nóvember (Jóhannes Sigfinnsson), og á
Kvískerjum í Öræfum voru gráþrestir nokkuð algengir í nóv. og
fram i desemher (Ilálfdán Björnsson).
14. Svartþröstur — Turdus merula merula L.
Árið 1940 varð viða vart við svartþresti, eins og sjá má af eftir-
farandi upplýsingum: Um miðjan febrúar hélt svartþröstur sig í
nokkra daga á Láganúpi í Kollsvik i V.-Barð. (Halldór Guðhjarts-
son). Á Norðfirði héldu 2 svartþrestir sig allan veturinn 1940—
1941 og álu með snjótittlingum, þar sem þeim var gefið (Björn
Björnsson). Á Hólum i Hornafirði voru 2—3 svartþrestir næstum
allan veturinn 1940—1941 (Sigurður Björnsson). Á Fagurhóls-
mýri i Öræfum sásl svartþröstur þann 22. okt., og á Kvískerjum í
Öræfum sást svartþröstur 14. okt. og aftur 30. nóv. (Sigurður
Björnsson). I Berjanesi í Landeyjúm sást svartþröstur í september
(Guðjón Einarsson). í Fuglanýjungum I var þess getið, að 4 svart-
þrestir Iiefðu haldið sig i Vestmannaeyjum frá ]>ví um haustið
1939 til áramóta 1939 og 1910. Samkvæmt síðari heimildum dvöld-
ust þeir þar til vors 1940. Ennfremur sáust nokkrir svartþrestir í
Vestmannaeyjum i byrjun des. (Þorsteinn Einarsson).
Árið 1941 voru svartþrastakomur hér með svipuðum hætli og
næstu ár á undan. I Króksfjarðarnesi í A.-Barð. sáust 2 svart-
þrestir um mánaðamótin nóv. og des. Þeir héldu sig þar nálægt
túninu í rúma viku, en hurfu síðan (Skúli Gunnarsson). Á Lága-
núpi í Kollsvík í V.-Barð. sást svartþröstur um Iiaustið, og segir
heimildarmaður minn (Einar T. Guðbjartsson), að svartþrestir
hafi sézl þar þvínær árlega hin síðustu ér. Milli 10 og 20 svart-
þrcslir héldu til á Grímsstöðum við Mývatn seint á árinu eða nokk-
uð fram i des. (Jóhannes Sigfinnsson). Á Lóni í Kelduhverfi sást
svartþröstur seinl i desemher. Á Norðfirði var svartþröstur um
tíma i nóvemher (Björn Björnsson). Á Teigarhorni við Beru-
fjörð sáust 4—5 svartþrestir í nóv. (Sigurður Björnsson). Á
Kvískerjum í Öræfum sásl svartþröstur 20. marz, og dvaldist