Náttúrufræðingurinn - 1942, Side 19
NÁTTÚR UFRÆÐINGI JRINN
177
0.70—1 m að þvermáli og 0.40 m á hæð og hreiðurlautin sjálf
•5—6 cm. djúp. Bæði hjónin hjálpast að við að hyggja hreiðrið,
en kvenfuglinn leggur sig þó meira fram við verkið. Meðan á
úlunguninni stendur og eins meðan ungarnir eru í hreiðrinu,
eru hæði hjónin að smábæta við hreiðrið með þvi að hera að
grænar greinar. Eftir að ungarnir eru komnir úr eggjunum. eru
þessar greinar stundum notaðar lil þess að skýla ungunum fyrir
sterkri sólbirtu. í Mið-Evrópu fer hunangshaukurinn að verpa
í mailok eða í júní, einstaka sinnum þó ekki fvrr en i júhbyrjun.
Eggin eru 2, sjaldan 3, og liða 3—5 dagar á milli þeirra. Þau
eru gulhvít með kastaníubrúnum skýflikrum, sem oftast eru
svo þéttar, að varla sésl i grunnlitinn. Hjónin ski|)tast á um að
liggja á eggjunum, en kvenfuglinn á ])ó meiri þátt i útunguninni.
Útungunarliminn eru 28—35 dagar. Bæði hjónin afla fæðu handa
ungunum, en þeir verða fleygir, þegar þeir eru 35 16 daga gaml-
ir. Fyrst eftir að þeir eru orðnir flevgir, hverfa ])eir þó alltaf
öðru liverju aftur lil hreiðursins.
Fæða hunangshauksins eru einkum vespur og býflugur
og lirfur þeirra. Vespu- og býflugnabú rifur fuglinn upp með nefi
og fótum. Stundum grefur hanu sig þá svo djúpt niður í jörðina,
að hægt er að komast að lionum óvörum og ná honum. Auk ])ess
lifir hann á hunangi og forsmáir ekki heldur smærri dýr, svo sem
froska, eðlur, mýs og fuglaunga, og gæðir sér jafnvel stundum
á eggjum, ánamöðkum, berjum og aldinum.
A þýzku er hunangshaukurinn kallaður Wespenbussard, á
enskú IIoney-Buzzard, á dönsku Hvepsevaage, á norsku Hvepse-
hög og á sænsku Bivráke.
21. Fiskiörn — Pandion haliaetus haliaétus (L.).
Þann 6. des. 1910 fannst dauður fiskiörn hjá Fagurhóhnsmýri i
Öræfum. Mun hann liafa sézt þar áður i nóv. Sigurður Björns-
son á Kviskerjum i Öræfum sendi Nátlúrugripasafninu væng og
Iiöfuðhein af þessum fugli, og er það nú hvort tveggja gevmt þar.
I bréfi lil min skýrir Bjarnfreð Ingimundarson á Efri-Steins-
mýri í Meðallandi frá því, að þar Iiafi sézt fiskiörn, en ég hefi
eklci fengið vitneskju um ])að. hvort það hafi verið árið 1940 eða
1941 eða á livaða tíma árs það hafi verið.
22. Gráhegri — Ardea cinerea cinerea L.
Nokkrir gráhegrar, oftasl 4 saman, héldu til hjá Fagurhöls-
12