Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1942, Page 20

Náttúrufræðingurinn - 1942, Page 20
178 NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN mýri í Öræfum frá því um miðjan ágúst og til septemberloka 1940 (Sigurður Björnsson). Þann 28. olct. 1941 sáust aftur grá- hegrar á Fagurhólsmýri, og voru þeir þá tveir saman (Hiálfdán Björnsson). Þann 16. sept. 1941 sást ennfremur ungur gráhegri lijá Bakkavik, sem er skammt frá Húsavík í S.-Þing. (Kristján Geir- mundsson). 23. Ameríku-sefhegri — Botaurus lentiginosus (Mont.). í bréfi frá Ólafi Sveinssyni, Lambavatni á Rauðasandi, segir svo: „I september 1941 tel ég mig hafa séð hér (þ. e. á Lamba- vatni) Ameríku-sefhegra eins og þann, sem ég sendi ham af til Dr. Bjarna SæmUndssonar árið 1924. Sá ég fuglinn bæði sitjandi og fljúgandi.“ Þó að ég liafi ekki fengið þennan fugl til athug- unar, tel ég samt enga ástæðu til þess að efast um, að um þessa tegund liafi verið að ræða. Eins og Ólafur bendir á, náði hann Ameríku-sefhegra á Lambavatni árið 1924, og er hamurinn af honum geymdur á Náttúrugripasafninu. Er því harla ólíklegt, að Ólafur bafi ekki þekkt fuglinn aftur, enda er hann mjög glögg- ur maður. 24. Brandgæs — Tadorna tadorna (L.). Þann 28. desember 1941 var skotinn karlfugl þessara tegundar á Eyjafirði skammt frá Gæsum. Fuglarnir voru tveir, en aðeins annar þeirra náðist. Með þennan fugl var komið til Kristjáns Geirmundssonar á Akureyri, og var hann beðinn að setja hann upp. 25. Toppsefönd — Podiceps cristatus cristatus (L.). Þann 12. janúar 1939 var skotinn fugl jxíssarar tegundar við Heimaey í Vestmannaeyjum. Friðrilc Jesson, iþróttakennari í Vestmannaeyjum, náði i fuglinn og setti liann upp, og er hann nú í eign hans. Um þennan fugl hefir verið getið allítarlega í síð- asta liefti Náttúrufræðingsins1). 1 raun og veru liefði átt að geta hans í Fuglanýjungum I, en því miður var ég ekki búinn að fá vitneskju um þennan fund, þegar sú skýrsla var prentuð, og læt ég hann þvi koma með í þessari skýrslu, þó að liann hafi náðst 1) Þorsteinn Einarsson: Nýr fugl. Stórtyppt sefönd (Podiceps cristatus cristatus (L.) Náttúrufr., XII. árg., 1942, bls. 148—151.

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.