Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1942, Page 25

Náttúrufræðingurinn - 1942, Page 25
XÁTTÚR UFRÆÐINGURIXX 183 ir að lit með áberandi livítum dílum á fjaðrajöðrunúm, sem mynda hvitar langrákir ofan á liöfði og aftan iá hálsi. Axlarfjaðrir, innri armflugfjaðrir og innri yfirvængþökur eru eins á lit og bakið og með sams konar livítum dílum. Ytri armflugfjaðrir, liandflugfjaðr- ir og ytri yfirvængþökur eru einnig svipaðar að lit, en án hvitra dila, og dökkna, eftir því sem utar dregur, og útfanir á ytri hand- flugfjöðrum og handþökur ásamt þumalvæng eru svartar. Yfir- stélþökur eru dökkbrúnar með hvítum jaðardílum og þær ytri með breiðum hvitum þverbeltum. Miðsamstæða stélfjaðranna grá- grænbrún með hvítum jaðardílum. Á öllum öðrum stélfjöðrum skiptast á breið, hvít og dökkbrún þver- belti. Að neðanverðu er fuglinn hvítur með grábrúnum langrák- um og flikrum á höf- uð- og hálshliðum, á framanverðum hálsi neðan við kverk og á bringuhliðum. Undir- vængþökur og væng- krikafjaðrir dökk- brúnar með hvítum þverbeltum. Nef dökkbrúnt, neðri skoltur grænn við rót- ina. Fætur dökkgrænleitir. Lithimna dökkbrún. Stærð í mm: vængur 126—133,5 á karlf. og 130—138 á kvenf., nef 26—30.5 á karlf. og 28—30 á kvenf., stél 46—54 og rist 26—30. Karl- og kvenfuglar í vetrarbúningi eru mjög svipaðir að lit og fuglar í sumarbúningi, en eru þó heldur ljósari (grárri) að ofan, og hvítu dilarnir eru ekki eins áberandi. Dökltu rákirnar á framanverðum hálsi og bringuhliðum eru ekki eins skýrar og á fuglum í sumar- búningi. Ungir fuglar á fyrsta hausti eru svipaðir fuglum í vetrar- búningi, en dílarnir á fuglinum ofanverðum eru ekki hvítir lield- ur ljósryðlitir. Varpheimkynni dílastelksins (Tringa solitaria solitaria) ná frá Nýfundnalandi og Labrador vestur til Mackenziefylkis og Alberla. Hann sést einnig á sumrin i Bandaríkjunum suður til Iowa, Oliio og Pensylvaníu, en engar sannanir eru þó fyrir þvi, að liann verpi þar. Önnur, vestrænni undirtegund, Tringa solitaria cinnamomea Dílastelkur.

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.